Óveðrinu slotaði snögglega

520513.jpgVindmælingar seint í gærkvöldi sýndu hvað veðrið gekk snögglega niður strax í kjölfar skilanna.  Á Steinum undir Eyjafjöllum slotaði heldur frá kl. 18 þegar A-veðrið var í hámarki og rétt fyrir miðnætti er eins og skrúfað hafi verið fyrir og vindur varð hægur af breytilegri vindátt nánast á augabragði. 

picture_390_953717.pngÓveðrið í gær var langverst syðst á landinu, í Eyjum og undir Eyjafjöllum og síðan á Suðurnesjum.  Lægin hélt sig á endanum í hæfilegri fjarlægð og harðasta vindröstin náði því ekki lengra inn á landið. Þannig var talsverður munur á veðurhæð í Keflavík og á Reykjanesbrautinni annars vegar og í Reykjavík hins vegar.  Á Reykjavíkurflugvelli náði vindurinn stormstyrk eða 21 m/s og 32 m/s mældist í mestu hviðu.  Miðað við vindáttina, þ.e. A-átt þykir slík veðurhæð í Höfuðborginni bara sæmileg, a.m.k. í seinni tíð.  Það er frekar að vindur nái sér á strik þegar vindáttin SA-læg svo ekki sé talað um SSA-átt.

Óveðrið í gær er samt ekki það versta sem komið hefur sunnantil á landinu í vetur.  Snemma í haust eða 9. október gerði að sumu leiti keimlíkt veður (þ.e. þegar lægðirnar og brautir þeirra eru borna saman), nema hvað það var heldur harðara og illskeyttara. 

Tölvumálin eru komin í lag hjá Veðurstofunni og allar athuganir frá því í gær því aðgengilegar.

Ljósmyndin er fengin af vef Víkurfrétta, vf.is. / Einar 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Þakka góðar færslur  fyrir veðuráhugamenn. Það datt sem sé  í dúnalogn.

Eiður Svanberg Guðnason, 22.1.2010 kl. 11:10

2 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Hér er uppgjör óveðursins í Vestmannaeyjum 21. janúar 2010:

 

Mesti 10 mín. meðalvindur:

Stórhöfði 41,8 m/s (einhvertímann milli kl.14 -15)

Surtsey 27,7 m/s (einhvertímann milli kl.16-17)

Vestmannaeyjabær 27,3 m/s. (kl.15)

 

Mesta vindhviða: 

Stórhöfði 51,8 m/s. (einhvertímann milli kl.15-16)

Surtsey 37,0 m/s. (einhvertímann milli kl. 14-15)

Vestmanneyjar 42,4 m/s. (einhvertímann milli kl. 13-14)

 

Til samanburðar frá 9. október 2009, þá var mesti meðalvindur á Stórhöfða 45 m/s. og vindhviða upp í 52,7 m/s. Og var það mesta veðurhæð í 18 ár á Stórhöfða.

Pálmi Freyr Óskarsson, 22.1.2010 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 1786258

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband