26.2.2010
...djúpt í í kalda loftinu.
Ástæða þess hversu vetrarlegt er nú á landinu er ekki bara árstíminn eða almakið eins og einhverjir myndu segja, heldur það hvað Ísland liggur nú djúpt inni í heimskautaloftinu.
Eins og gert var að umtalsefni í gær að jafnvel suðaustanáttin ber með sér frost að syðsta hluta landsins. Þessu ástandi verður ágætlega lýst með því einfaldlega að líta til þess hvað er að gerast hátt uppi í veðrahvolfinu í 8 til 9 km hæð. Skotvindurinn þarna uppi sem markar skil á milli heittempraða loftsins í suðri og heimskautaloftsins í norðri liggur mjög sunnarlega um þessar mundir. Hann er svo sunnarlega að litlu má muna að hann "detti út af " kortinu. Um er að ræða greiningu frá því í gær 25. febrúar kl. 12. Lægðagangurinn er allur inn yfir Suður-Evrópu og við þessar aðstæður verður veður mjög óstöðugt og frekar rigningarsamt á hinum annars mjög svo veðursælu Kanaríeyjum þar sem svo margir dveljast um þessar mundir.
Hvað sem öllum lægðardrögum hér við land og smærri dráttum veðurlagsins líður mun þetta megineinkenni lofthringrásarinnar, þ.e. sérlega suðlæg lega skotvindsins, halda a.m.k. eitthvað fram í næstu viku.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 5
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 1790696
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 50
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.