26.2.2010
Snjódýptin 100 sm í Vík
Snjódýpt var metin og mæld á veðurathugunarstöðvunum Veðurstofunnar í morgun. Í Vík í Mýrdal var hún álitin vera 100 sm eða eins meters jafnfallinn snjór. Í gær þegar ofankoma var sem áköfust var vindur um og yfir 10-12 m/s. Ekki svo hvasst en nægur vindur engu að síður til að feykja í skafla. Athygli vekur að úrkoma síðasta sólarhring mældist ekki nema 10 mm. Það er hvorki í samræmi við snjódýptina né heldur það fannfergi sem nú er í Mýrdalnum. Það er líka alþekkt vandamálið sem fylgir úrkomumælingum í snjókomu og skafrenningi.
Mælingamanni í Vík hefur verið vandi á höndum við að meta jafnfallinn snjó, en engin ástæða er til þess að rengja mælinguna á nokkurn hátt. Snjóþyngsli eru mikil í Vík og þar í kring. Á Stórhöfða er snjódýptin aftur á móti ekki nema 15 sm. Pálmi Freyr Óskarsson veðurathugunarmaður sagði hér í nótt að skafið hefði af Höfðanum í rokinu í gær og lítill sest þar til að snjónum.
Við sjáum líka á þessu landsyfirliti að við Skeiðsfoss í Fljótum er mæld snjódýpt 85 sm. Þar hefur verið að bæta á snjóinn jafnt og þétt síðustu 10-12 dagana.
Meira um snjódýptarmælingar, vandkvæði þeirra og skráð met frá Skeiðsfossi 1995 má lesa í pistli Trausta Jónassonar.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.4.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 41
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.