12.9.2010
Fyrsta haustlægðin
Lægð sú sem er nú vaxandi á sunnanverðu Grænlandshafi getum við sagt að hafi öll einkenni haustlægðar. Skil hennar með tilheyrandi rigningu fara yfir landið í dag, sunnudag. Í sjálfu sér þarf ekki að vera sérstakur haustbragur af slagveðursrigningu.
Það sem gerir lægðina fyrst og fremst að haustlægð er að hún dýpkar fyrir þær sakir að kalt loft er nú í háloftunum í grennd við sunnanvert Grænland. Þar er tekið að hausta og lofthjúpurinn í veðrahvolfinu neðan 10 km orðinn gegnkaldur ef svo má segja. Meðfylgjandi kortaklippa af wetterzentrale.de sýnir þetta vel þar sem litaskilinn er vísbending um hita loftsins í rúmlega 5 km hæð.
Það er með öðrum orðum frekar hlýtt og rakt loft sem berst norður á Grænlandshaf í veg fyrir kuldann í háloftunum. Á meðan þetta milda og raka loft fer hjá rignir og lægðin er heldur vaxandi á vestanverðu Grænlandshafi. Miðjan sígur síðan í kjölfarið til austurs og kalda loftið í háloftunum með. Það verður á dóli hér fyrir sunnan og suðvestan land á morgun.
Næsta bylgja af suðlægu lofti keyrir einnig í veg fyrir kuldapollinn uppi. Hugum hugfast að það er hitamunur loftmassa sem einkum fóðrar lægðir. Sú fer austar og dýpkar fyrir norðaustan land. Það hefur í för með sér norðanskot í veðrinu hér á þriðjudag og miðvikudag. Kólnandi veður eins og gefur að skilja og snjóa mun í fjöll um norðanvert landið.
Flokkur: Veðuratburðir hér og nú | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 3
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 51
- Frá upphafi: 1790703
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 49
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
takk fyrir þetta - mér finnst svona veðurlýsing mjög athyglisverð.
kveðja
Frímann
frimann (IP-tala skráð) 12.9.2010 kl. 20:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.