21.9.2010
Igor að ummyndast í djúpa og krappa lægð
Svona a.m.k. að hálfu leyti virðist gamli fellibylurinn Igor ætla að ná endurnýjuðum krafti sem lægð í vestanvindabeltinu. Þennan þriðjudagsmorgunn er Igor suðvestur af Nýfundnalandi á leið í veg fyrir kaldan kjarna í háloftunum.
Tölvureiknaðar spár gera ráð fyrir því að Igor dýpki aftur, en hann þrýstingur í miðju er nú um 965 hPa og hefur Igor sem fellibylur vekst mjög síðasta sólarhringinn. Nú fellur hins vegar þrýstingur á nýjan leik, þó svo að hitabeltisloftið og haustkalda loftið í norðvestur yfir Labrador nái ekki fyllilega saman. Lægðin eða Ex-Igor eins og Breska Veðurstofan kallar hana er spáð sem leið liggur skammt fyrir sunnan Nýfundnaland og nær sennilega mestir dýpt á Labradorhafi í fyrramálið um kl. 06, líklega um 945 hPa. Þó mjög hvasst verði syðst á Nýfundnalandi og aftakaúrkoma eftir því síðar í dag, má reikna með að versta veðrið verði úti á rúmsjó fyrir sunnan og suðaustan lægðarmiðjuna þar sem þrýstilínurnar eru hvað þéttastar og vindur nokkuð samsíða ferli lægðarinnar. Á þessum slóðum má reikna með 11 til 12 metra ölduhæð í nótt og fyrramálið eins og myndin sýnir (af wetterzentrale.de).
Syðst á Grænlandi mun líka blása hressileg af SA og A á morgun, en þá verður lægðin líka farin að grynnast.
Hér á landi verða beinu áhrifin nærri því engin, en vissulega hefur þetta djúp lægð að haustinu áhrif á stóru myndina og óbeinu áhrifin verða því sú að opna fyrir streymi af mildu lofti úr suðvestri hingað síðar meir um helgina og eitthvað framan af næstu viku ef að líkum lætur.
Flokkur: Veðuratburðir hér og nú | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 51
- Frá upphafi: 1788784
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 49
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.