Í Morgunblaðinu í dag þriðjudag mátti lesa athyglisverða umfjöllun þar sem greint er frá niðurstöðu mælinga á NO2 á höfuðborgarsvæðinu. Rætt var við Þórarinn Gíslason prófessor og lungnalækni sem stóð ásamt öðrum að rannsókninni. Fram kom að heildarstyrkur á NO2 er að jafnaði verulegur og mestur næst helstu umferðaræðum, en minni í úthverfum.
Þórarinn segir í viðtalinu við Morgunblaðið:
"Þetta kom mér mjög á óvart því að ég hélt að meðaltalsgögn yrðu svipuð fyrir allt svæðið," segir Þórarinn. "Staðviðri er jú hér fátítt í votviðrinu. Staðsetning heimilis skiptir engu að síður miklu máli. Þessi fylgni kemur glögglega í ljós þegar einstökum mæligildum rannsóknarinnar er raðað samkvæmt fjarlægð frá stofnæðum, þar sem kemur fram að magnið er mest í innan við 200 metra fjarlægð frá þeim.
Þetta magn getur haft heilsufarslegar afleiðingar sé litið til þess að langvinn berkjubólga er algengari í nálægð við mikla bílaumferð þar sem loftmengunin er almennt meiri."
En hvað er NO2 ?
Köfnunarefnisdíoxín, NO2 er gastegund, en ekki fast efni. Gulbrúni liturinn sem oft má greina á höfuðborgarsvæðinu á mengunardögum er mest megnis af völdum köfnunarefnisdíoxíns. Uppspretta á NO2 í þéttbýli hér á landi er nær eingöngu frá bílaumferð. Hvarfakútar í bílum eru til þess gerðir að draga úr mundun þessarar gastegundar. Varast ber að rugla NO2 við svifryk, en það er samansett úr föstu efni, afar smágerðum ögnum.
Heilbrigðismörk köfnunarefnisdíoxíns miðast við 40 µg/m3 (míkrógrömm á rúmmetra lofts) að jafnaði yfir árið, en samkvæmt mælingum Þórarins og félaga var það á milli 20 og 29 µg/m3 mjög víða meðfram helstu stofnbrautum höfuðborgarsvæðisins eins og sjá má á meðfylgjandi korti úr Mbl.
Athugun umhverfisstofnunar Evrópu árið 2002 leiddi í ljós að allt að 40% íbúa í borgum Evrópu væru búsettir þar sem mengun NO2 er alla jafna yfir heilsuverndarmökum.
Upplýsingasíða Umhverfisstofnunar um kofnunarefnisoxíð er hér
Mælingar Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar við Grensásveg hafa þennan tengil.
Hvet ég lesendur til þess að kynna sér umfjöllun Morgunblaðsins um þessi mál. Loftið í Reykjavík er ekki eins hreint og ætla mætti !
Meginflokkur: Veðuratburðir hér og nú | Aukaflokkur: Samgöngur | 31.1.2007 (breytt 14.9.2009 kl. 14:05) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 1790791
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er reyndar slappur í efnafræði - en er þetta ekki díoxíð? Díoxin er svolítið annað mál er það ekki?
doni (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 09:39