7.1.2011
Stórsjór úti fyrir Norðurlandi
Varað var við hugsanlegum sjávarflóðum í höfnum Norðanlands á meðan norðankastið er að ganga yfir. Sérstaklega nú snemma í nótt á kvöldflóðinu. Á vef Siglingastofnunar er hægt að nálgast fínar ölduhæðarspár. Sú sem hér er sýnd gildir kl. 06 að morgni 7. jan (eftir greiningu 6. jan kl.00). Sjá að á rúmsjó norður af landinu er gert ráð fyrir 14 metra ölduhæð. Það er ekkert annað en stórsjór og sérlega mikil ölduhæð á alla mælikvarða.
Öldumælingadufl Siglingastofnunar á Grímseyjarsundi virðist vera úti og því fást ekki raunmælingar og þá samanburður við þessar spár sem eru hluti af spákerfi Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar ECMWF úti í Reading. Reynslan af þessum ölduspám hefur þótt vera nokkuð góð hér við land, en athugið að kerfið tekur eingöngu til úthafsöldunnar.
Flokkur: Veðuratburðir hér og nú | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 10
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 60
- Frá upphafi: 1788778
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 56
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Í óveðrinu mikla, á fyrrihluta ársins 1991, var ég á frystitogara úti fyrir Suðurlandi. Þá var einmitt stórstraumur með tilheyrandi flóðum, m.a. á Stokkseyri og Eyrarbakka. Það var "slowað" upp í vindinn og ég man að við vorum nokkrir upp í brú og störðum eins og dáleiddir á þessar hamfarir. Þegar vindurinn náði hámarki var eins og hann "heflaði sjóinn og öldugangurinn minnkaði til muna. Særokið var eins og skafrenningur á haffletinum.
Gunnar Th. Gunnarsson, 7.1.2011 kl. 01:04
þú ert að tala um 3. feb. 1991?
Ingimar (IP-tala skráð) 7.1.2011 kl. 09:12
Flóðin á Eyrarbakka og Stokkseyri voru 9. janúar 1990.
Sjá nánar bloggið Brim á Bakkanum.
http://brim.123.is/default.aspx?page=page&id=87/
ESv
Einar Sveinbjörnsson, 7.1.2011 kl. 10:14
Mig minnir að þetta hafi verið 91, en kanski er það hið fræga misminni... sem gerir stundum vart við sig
Gunnar Th. Gunnarsson, 7.1.2011 kl. 10:57
Þegar ölduhæð er 14 m er hafrót en hærri öldur aftaka hafrót. Í morgun kl. 10 var ölduhæð á Grímseyjarsundi 12 m. 9. janúar 1990 var ölduhæðin við Surtsey um 16 m en sú mesta yfir 22 m og talin aflmesta alda sem hafði mældst á Jörðinni. 3. febrúar 1991 mældist mesti vindhraði á Stórhöfða 110 hnútar (57 m/s)
Óskar J. Sigurðsson (IP-tala skráð) 7.1.2011 kl. 13:56
Þá hefur þetta verið 91, en flóðin á stokkseyrarbakka 90
Gunnar Th. Gunnarsson, 7.1.2011 kl. 16:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.