Spáin fyrir þá sem verða á ferðinni í kvöld og nótt

Ég sendi Vegagerðinni nú síðdegis eftirfarandi texta sem sjá má á upplýsingasíðunni þar.  Frekar febrúarlegur texti fyrir veðurspá þykir mér !

Veður fer versnandi almennt á Austur- og Norðausturlandi vegna snjókomubakka sem kemur inn á landið úr austri. Hann hreyfist síðan vestur með Norðurlandi í nótt. Gert er ráð fyrir að á flestum vegum frá norðanverðum Austfjörðum og norður á Húsavík verði talsverð ofanhríð fram á nóttina. Jafnframt hvasst og skyggni því mjög takmarkað. Austast á landinu hlánar þó í byggð seint í kvöld og þá með krapaslyddu. Við Eyjafjörð og þar um slóðir er vaxandi éljagangur í kvöld og víða nær samfelld hríð í nótt og fram á morgundaginn. Frá því seint í kvöld er líka gert ráð fyrir éljum eða snjómuggu í Skagafirði og Húnaþingi, þ.m.t. á Holtavörðuheiðinni sem og á Ströndum. Á Vestfjörðum verður minniháttar éljagangur og þar vægt frost alveg niður undir sjávarmáli. Aukin hríðarmugga með morgninum.

Gert kl. 20. maí kl. 15:30


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1788783

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband