Næturfrost aðra nóttina í röð !

Mynd HelgaBLiðna nótt var ekki fullt eins mikið frost og þá síðustu (aðfarnítt 7. júní) og heldur ekki eins víðtækt á landinu.  Mest í byggð mældust -5,0°C á Haugi í Miðfirði, en almennt séð virðist sem hitinn hafi farið niður fyrir frostmark um nánast allt Húnaþing og eins mjög víða í Skagafirði.  Ástandið var betra austantil á Norðurlandi samanborðið við fyrrinótt þegar næturfrost voru víðast hvar.  Þó náði að frysta á stöðum eins og Ásbyrgi, Raufarhöfn og síðan ofan eins og við Mývatn.

Á Egilsstöðum og eins á Seyðisfirði féll mælirinn rétt niður fyrir núllið um lágnættið og einnig í Skaftafelli.  Suðurland slapp hins vegar betur þessa nóttina og hjálpaði smávægileg vindgjóla þar til. 

Enn verður kalt í lofti fram á föstudag, og hætt við næturfrostum.  Vindur er þó ákveðnari (N-átt), meiri blöndun loftsins við jörð og minni líkur fyrir vikið á næturfrosti svona heilt yfir. 

Ekki kæmi mér á óvart að ýmsar ræktaðar nytjaplöntur þoli illa þessa tíð og sérstaklega þar sem verið hefur að gera þetta 3 til 5 stiga frost.  Höfum líka í huga að kuldinn verður enn meiri í grashæð en þessari 2ja m hæð þar sem mælarnir eru staðsettir.   Fróðlegt væri að heyra hér frá ræktendum byggs eða repju.  Reyndar eru mörg þeirra afbrigða frostþolin (vetrarafbrigðin).  Flest  sumarblóm þola almennt séð frost afar illa, en fjölærar plöntur betur.  Kartöflugras er sennilega óvíða farið að sjást enn í þessari tíð þó löngu sé búið að sá.  En í það minnsta getur þessi snemmsumarkulda alls ekki talist hagfelldur fyrir gróður.  Meira að segja lúpínan virkar hálf ræfilsleg og eins og hún hafi beðið með blómgun þar til fer að hlýna, þrátt fyrir allt sólskinið sem sú planta er svo elsk að. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1790695

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband