Lakasta 17. júní veður á landsvísu a.m.k. frá 2004

17_júní_2011.png

Veðrið 17. júní í ár var með lakasta móti í samanbuður við síðustu ár.  Fremur svalt var svona heilt yfir, að vísu komst hitinn í 15,6°C á Þingvöllum.  Sá hámarkshiti landsins þykir nú frekar lágur.  En stundum hefur reyndar verið virkilega kalt 17. júní.  Á ár var sólarlaust um nánast land allt, sums staðar smávægileg rigning eða skúrir, einkum um landið sunnanvert.  En það sem mest var um vert var hversu næðingssamt var í NA-áttinni um mest allt land.  

Samanburður er eins og venjulega ekki auðvelsur þegar meta þarf nokkra þætti og á landsvísu.  En klárlega hefur veður verið markvert betra öll undanfarin ár og það síðasta sem kemur til greina er 2004. Þá var N-átt og kalt í veðri með úrkomu norðan- og norðaustantil, en alveg bærilegt sunnanlands eins og oft í N-áttinni sunnanlands.  17. júní 2001 var frekar óyndislegur heilt yfir á landinu eins og kortið sem fengið er af vef VÍ sýnir vel.  Þá var ekki nema 7 stiga hiti í Reykjavík á hádegi með skúrum og 2°C á Hveravöllum með slyddu.  Þó ekki hafi rignt norðan og austantil var þar líka svalt, enda álitlegur háloftakuldapollur yfir landinu og norður undan.  

2001-06-17_12_1091874.gifMeð nokkuð góðum rökum má halda fram að veðrið 17. júní 2011 sé það lakasta frá 2001 þegar það var kaldara, sólarlaust að mestu og rigning sunnan- og suðvestanlands að auki. 

Nokkur önnur eftirminnileg 17. júní-fýluár fylgja hér einnig.  Botninum var náð 1959, þegar gerði alvöru N-hret með öllu því versta sem því tilheyrir. Um það hefur verið fjallað áður. Trausti segir í færslu í gær: 

"Er sá 17. 1959 stundum tilfærður sem versti 17. júní allra tíma, alhvítt var þá um mestallt Norðurland. En illviðri þetta á reyndar í harðri samkeppni við fleiri afspyrnuslæm veður sem lagst hafa ýmist á þann 17.  eða dagana tvo næstu á eftir."

  • 1995
  • 1986
  • 1979
  • 1974
  • 1965
  • 1959 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband