6-11 daga spár - yfirferð (8)

Skoðun á langtíma spánni fyrir liðna helgi og gefin var út 13. október fylgir hér.Sumt kemur ágætlega út en annað síður eins og gengur og gerist. 

Matskvarðinn sem stuðst er við er hér einnig og kortin eru fengin af vef Veðurstofunnar.

3 stig. Spáin gekk eftir í öllum aðalatriðum.  Á það við um stöðu veðurkerfa, vindátt á landinu og einnig þann breytileika veðurs eftir landshlutum sem spáin gat til.  

2 stig. Spá gekk eftir að sumu leyti, en öðru ekki.  Staða veðurkerfa er a.m.k. í áttina og hitafar með þeim hætti sem spáin gaf til kynna.  Vindátt var e.t.v. ekki sú sama eða greinileg tímahliðrun veðurkerfa. 

1 stig. Ekki hægt að segja að spáin hafi ræst og flest með öðrum hætti, en þó a.m.k. einn tilgreindur veðurþáttur eitthvað í áttina (staða kerfa, vindátt, hiti eða úrkoma).

0 stig. Veður nánast alger andstæða spárinnar að flestu eða öllu leyti. 


Miðvikudagur 19. október:

N-átt, nokkuð hvöss með éljum og snjókomu norðan- og norðaustanlands.  Lægð á milli Íslands og Noregs, en hæð að byggjast upp yfir Grænlandi.

111019_1200.png

N-áttin var í raun að fullu gengin niður á miðvikudag.  Frekar að hún hafi verið að verki á þriðjudag og komð hægviðir, jafnvel SV-átt með smávægilegri úrkomu vestantil  Lægð á milli Íslands og Noregs eins og spáð var. Aðeins 1 stig.

 

 

 

 

 

 

 

Fimmtudagur 20. október:

Hæðarhryggur yfir landinu eða hér nærri.  N-áttin gengur niður og fremur kalt í veðri en jafnframt bjart og fallegt veður víða um land.

111020_1200.png N-áttin löngu gengin niður og komin lægða á Grænlandshaf með suðlægum vindi og hlýnandi veðri.  Veðrið alger andsæða spárinnar og 0 stig. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Föstudagur 21. október:

Dálítilli lægð er spáð til austurs skammt fyrir sunnan land.  Vindurinn verður því SA- og A-lægur um tíma og heldur hlýnar að nýju.  Rigning sunnan og suðaustanlands, en snjókoma til fjalla.

111021_1200.png

Spurning hvort lægðin sé ekki frekar fyrir suðvestan lan, heldur en suður af.  Vindur hægur og kannski helst S-lægur.  Ekki hægt að segja að veður sé hlýnandi (gerðist daginn áður !).  1 stig.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Laugardagur 22. október:

Lægðabrautinni er spáð fyrir sunnan landið til austurs.  Meinlítið veður hér á landi.  Fremur hæg A-læg vindátt og eiginlega hvorki milt né heldur kalt. Einhver úrkoma sennileg, syðst á landinu og suðaustanlands. 

111022_1200.pngAllt í einu er spáin alveg hrein með ágætum. Meinlítið veður og vissulega hvorki hýtt né kalt. Lítilsháttar úrkoma sunnan- suðaustanlands og reyndar eitthvað víðar. Óhætt að segja 3 stig hér.  

 

 

 

 

 

 

 

 

Sunnudagur 23. október:

Lægð gæti verið á ferðinni fyrir sunnan landið og þá með A- og NA-átt hér á landi.  Mögulega nokkuð hvass.  Rigning eða slydda austan- og síðar norðaustanlands.  Einhver úrkoma í flestum landshlutum.

111023_1200.png

 Segja má að spáin hefi gengið eftir nánast í smáatrðum, nema að ekki var hvasst annars staðar en um landið norðvestanvert.  Í sjálfu sér eru það lítil frávik því vindáttin passar og veðurstaðan öll. Passar einnig að það rigndi norðan- og austanlands og slydda var nyrst og eins á fjallvegum.  3 stig

 

 

 

 

 

 

 

Mánudagur 24. október:

Snýst í N-átt með kólnandi veðri og hríðarveðri norðan- og norðaustantil. 

111024_1200.pngSnerist til N-átta með kólnandi veðri, en hríðin lét á sér standa fyrir norðan, því veðrið var þrátt fyrir allt bar alveg ágætt.  2 stig

 

 

 

 

 

 

 

Niðurstaða:  10 stig af 18 mögulegum.  Sérstakter miðað við fyrri skipti að spáin batnaði eftir því sem leið á .  Lang oftast er það öfugt.  Spágetan er mest fyrst en á það síðan til að fjara út. Ég er einna helst á því að tilviljun eða allt að því hafi ráðið því að spáin hrökk í rétta gírinn eftir að veðrið hafði þróast heldur hraðar um miðja vikuna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1790700

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband