Flaggað í V-áttinni

hirlam_wt_850_2012011006_12.gifÉg á alls ekki við að veðrið sé að gott að nú rjúki menn út til að flagga, heldur meina ég þetta í óeiginlegri veðurmerkingu.  Á vindakorti HIRLAM sem gildir kl. 18 ( af Brunni VÍ) er búið að "flagga" yfir mest ölu landinu.  Þarna erum við stödd í um 1.200 metra hæð og 25 m/s vindstyrkur er táknaður með flaggi.  Heilt strik er hins vegar 5 m/s og hálft 2,5.

Við sjáum að hann nær allt að 30 m/s yfir landinu.  Þetta þýðir að vindur til fjalla er 20-25 m/s og 15-20 m/s á láglendi.  Þá er ekki tekið tillit til hvers kyns misvindis s.s. í éljum eða vegna landslags.  Þetta á við um næstum því allt landið.  Helst að nyrstu hluti Vestfjarða sleppi betur.

Það er veðurhæðin sem fyrst og fremst er að valda vandræðum nú í samgöngum á vegum og ófærðinni. Þetta mikill vindur kemur hreifingu á snjóinn sem fyrir er veldur og veldur miklum skarfrenningi.  Síðan bætast dimm élin ofan á um vestanvert landið, en útlit er fyrir að heldur dragi úr þeim þegar líður á daginn.  Vind tekur hins vegar ekki að lægja fyrr en í nótt. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við erum bara búin að fá gömlu "góðu" vetrarveðráttuna aftur eins og hún var upp á sitt besta árunum 1960-1985.

Hrafnkell (IP-tala skráð) 10.1.2012 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband