Frost um allt norðaustanvert landið í morgun

Lömb að leik
Í morgun kl. 09 var eins stigs frost um nánast allt norðaustanvert
landið og mest fimm stig á Grímsstöðum á Fjöllum. Ofan í þetta
hrakviðri gekk á með dimmum éljum. Útlit er fyrir enn versnandi veður á
þessum slóðum, snjókomu og slyddu á morgun.  Úrkoman verður mikil
á sólarhringsvísu eða allt að 50-70 mm sýnist mér.  Samfelld og
mikil úrkoma, slydda eða snjókoma mun vara frá því í fyrramálið og fram
á þriðjudagskvöld, gangi spár eftir.  Alvöru maíhret sem þetta
veldur fjárbændum alla jafna miklum vandkvæðum þar sem taka þarf allar
lambær á hús.  Á Norðausturlandi eru mörg myndarleg fjárbú, s.s. í
Öxarfirði, Þistilfirði, Vopnafirði og á Jökuldal.  Samgöngur mun
lílega einnig raskast, vegir á Norður og Norðausturlandi munu verða
þungfærir eða ófærir, svo ekki sé talað um lélegt skyggni sem fylgir
hríðinni á fjallvegum.
mbl.is Kuldar og ófærð á norðaustanverðu landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1788793

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband