Veðrið á opnunarleik HM

c_briefcase2_my_documents_esv_mblblog_hm_logo.jpg

Opnunarleikur Þýskalands og Costa Rica mun fara fram í Munchen við kjöraðstæður.  Gera má ráð fyrir að hitastigið verði 20-21°C þegar leikurinn hefst og reiknað er með heiðum himni eða þunnri háskýjabreiðu sem dregur þá jafnframt úr sterkasta sólskininu.  

Fyrstu vikuna munu líkast til allir leikirnir í HM í Þýskalandi fara fram í brakandi blíðu og án þess að rigning fari að hrella sparkara og áhorfendur. Hitinn fer hækkandi um helgina og  ekki er ólíklegt að hitastigið verði orðið nálægt 30°C á þriðjudag eða miðvikudag.  Slíkur hitapottur mun áreiðanlega reynast Englendingum, Svíum og öðrum "köldum" þjóðum þungbærari, en t.d. Suður-Ameríku þjóðunum.   Eða hvað ??

Sjá má sjá t.d.  spá fyrir Frankfurt sem fengin er frá dönsku veðurstofunni. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband