Nær hitinn 25°C á Egilsstöðum á morgun ?

Skýjamynd 9. júní kl. 09

Það lítur út fyrir afbragðs helgi í veðurlegu tilliti á landinu.  Angi af hlýjum loftmassa úr suðaustri mun ná hingað í kvöld.  Þó ekki verði hægt að reikna með alveg þurru veðri vestan- og suðvestanlands, sérstaklega á sunnudag, að þá verður blítt veður á landinu.  Sérstaklega held ég að íbúar Norður- og Austurlands gætu átt eftir að kætast.  Hversu hlýtt það verður ræðst nokkuð af skýjafarinu.  Á morgun er hvað líklegast að sólríkt verði Norðaustan- og Austanlands.  Og þá verður hvað hlýjast í SV-átt á Héraði.  Mögulega komast hitatölur í 25°C þar ef sólin nær að skína glatt.  Ég ætla að leyfa mér að spá því að Hallormsstaður verði með hæsta gildið á morgun. Egilsstaðir, Kollaleira, Skjaldþingsstaðir, Grímsstaðir og Ásbyrgi verði síðan skammt undan. Fari svo að sólríkara verði fyrir norðan en nú er útlit fyrir mun hitinn einnig komast nokkuð yfir 20°C um miðbik Norðurlands.   

Á skýjamyndinni má sjá hitaskilin koma úr suðaustri og höfðu þau kl. 09 náð "landi" fyrir austan.  Þau mun síðan hreyfast rólega til norðvesturs og vesturs í dag og fylgir ferð þeirra sums staðar lítilsháttar væta.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1790692

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband