Þjóðhátíðardagur Norðmanna í kulda og trekki

Var á ráðstefnu í sumarveðri Tékklandi fyrir helgi um heldur vetrarlegt viðfangsefni. En það er önnur saga.  Þarna voru norskir veðurfræðingar sem á föstudag lá mikið á að komast til síns heima til að taka þátt í 17. maí, þjóðhátíðarhöldum lands sín.  Eitthvað voru þeir nú samt kindarlegir á svipinn og sögðu veðurspánna vera afar kuldalega, með norðanlofti og snjókomu alveg suður undir Ósló.

Sjálfur hef ég verið oftar en einu sinni á þessum degi í miðborg Óslóar þegar sól skein í heiði og fólki var greinilega  heitt í þjóðbúningum sínum ráfandi um með ís í hendi.  Í raun ólýsanleg stemming og allt önnur en hér heima á okkar 17. júní.

Raufoss 17.maí 2008 / Aftenposten_BERIT SYNNØVE VÅTSVEENEn það kom á daginn að fjölmiðlar greindu frá því að veðrið 17. maí hefði ekki verið verra á mörgum stöðum í 50 ár og lítið farið fyrir léttklæddum börnum og íssölu.  Myndin  sem hér fylgir og fengin er úr Aftenposten, er frá Raufoss sem er norðan Oslóar á milli Eidsvoll og Lillehammer.  Hún er tekin kl. 10 að morgni þjóðhátíðardagsins.  Ekki beint sumarleg mynd. 

Ástæða þessara veðrabrigða eftir öndvegistíð á þessum slóðum er bara ein.  Í maí leitar heimsskautaloft, sem enn er nóg af,  til suðurs hér og þar.  Stundum yfir okkur, en að þessu sinni streymdi það af miklum móð suður alla Skandinavíu og gerir enn þegar þetta er skrifað um 36 klst síðar.  


Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Misskipt er gæðunum! Hér í Reykjavík er maíhitinn enn yfir 8 stigum og verður a.m.k. eitthvað enn.

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.5.2008 kl. 11:02

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband