11.8.2009
Skýstrokkur í Álaborg
Danska Veðurstofan, DMI greinir frá því að skýstrokkur hafi myndast nærri Álaborg síðdegis í gær. Náði hann til jarðar og olli meira að segja minniháttar tjóni á tveimur húsum. Þá lyftist hjólhýsi og færðist um á annan meter. Trampólín tókst á loft og annað smálegt.
Sjónarvottur segir svo frá að hann hafi verið að koma úr stórmarkaði út í þá mestu dembu sem viðkomandi hafði orðið vitni að og mátt leita skjóls með innkaupakerruna. Vindurinn blés fyrst úr suðri og síðan skyndilega úr norðri. Allt í einu blasti við rani skýstrokks sem reif með sér runnagróður og þess háttar. Þá bar að mann á bíl sem sagðist hafa ekið í gegn um herlegheitin og tvær rúður bílsins brotnað við herlegheitin.
Danska Veðurstofan segir að kuldaskil hafi verið nánast kyrrstæð yfir Jótlandi tvo sólarhringana á undan og skýstrokkurinn verið í tengslum við skilin. Þetta mun hafa verið minniháttar skýstrokkur í samhengi við þá öflugu sem myndast að vorlagi í mið-vesturfylkjum Bandaríkjanna. Ranar neðan úr skýjum þar sem snúningur vindsins er skarpur og lóðstreymi mikið sjást stundum á norðlægum slóðum, meira að segja hér á landi. Fátítt er hins vegar að þeir herji á mannvirki og valdi tjóni. Það þekkist þó t.a.m. man ég eftir fregnum þess efnis frá S-Englandi og eins Þýskalandi.
Engin mynd hefur enn af fyrirbærinu við Álaborg, en DMI auglýsir eftir ljósmyndum til birtingar.
Flokkur: Utan úr heimi | Breytt 26.8.2009 kl. 12:58 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 7
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 1788788
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.