Veðurútlitið helgina 14. til 16. ágúst

hvanneyjarvitiHelgarspá Veðurvaktarinnar

 

 

 

Útlit er fyrir blíða ágústdaga.

Föstudagur 14. ágúst:
Lítið um að ver hér við land, minniháttar hæðarhryggur hér vesturundan.  Vindur verður því hæglátur og áttleysa.  Fremur bjart yfir að líta á mest öllu landinu og úrkomulaust.  Þó skýjað að mestu við Breiðafjörð og víða á Vestfjörðum og spáð er minniháttar vætu þar a.m.k. um tíma.  Þá verður þokan þaulsætin við Austfirði. Hitinn verður þetta 14 til 18 stig allvíða, en hafgola og svalara við sjávarsíðuna.  

Laugardagur 15. ágúst:
Hæðarhryggurinn svo að segja yfir landinu og léttskýjað framan af degi um mest allt land.  Bólstramyndun síðdegis og sums staðar fjallaskúrir t.a.m. á suðurhálendinu, en síður við sjóinn. Vindur hægur, lítið eitt austlægur ef eitthvað er.  Svipaður hiti áfram, en kólnar nokkuð í næturhúminu þegar svona stillt er.

Sunnudagur 16. ágúst:
Lítið eitt ákveðnari austanátt við suðurströndina vegna myndarlegrar lægðar sem stefnir á Bretlandseyjar.  Í stórum dráttum góðviðri hér áfram.  Fyrir utan þokubakka með Austfjörðum og norðausturströndinni ætti viða að sjást til sólar og úrkomulaust er að sjá um land allt. Fyrirvari þú um síðdegisskúri hér og þar. Hiti sæmilegur, ekkert sérlega hlýtt, en milt engu að síður. 

Einar Sveinbjörnsson

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftslag.is

Og sumarið heldur áfram, glæsilegt.

Loftslag.is, 13.8.2009 kl. 21:23

2 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Þó það nú væri Höskuldur !  Það er jú enn sumar ekki satt ?

Einar Sveinbjörnsson, 13.8.2009 kl. 21:55

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Síðasta sumar í heimi!

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.8.2009 kl. 01:21

4 identicon

Það er ekki hundi útsigandi hér í Öxarfirði.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 14.8.2009 kl. 12:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband