22.9.2009
Vetrarleg lýsing Vegagerðar
Haustið minnir á sig enda komin N-átt. Þessa lýsingu mátti sjá á vef Vegagerðarinnar í morgun og það er dálítill vetur í henni:
"Á Vestfjörðum eru hálkublettir á Gemlufallsheiði. Á Norðurlandi er krapi á Þverárfjalli og í Vatnsskarði. Á Austurlandi er hálka og skafrenningur á Hellisheiði eystri."
Því er bætt við að líkast til taki krapa og snjó upp eftir því sem kemur fram á daginn, sem er líklegt þetta snemma haustsins þegar sólin hefur enn talsvert áhrif til upphitunar á daginn, jafnvel þó alskýjað sé.
Hiti var um eða undir frostmarki á flestum fjallvegum um norðanvert landið í morgun, en misjafnt hvort úrkoma hafi verið einhver að ráði.
Myndin er úr vefmyndavél Vegagerðarinnar á Þverárfjallavegi. Þar er greinilegur krapi eða snjór sem dregur úr akstursskilyrðum.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvar er hún þessi hnatthlýnun??
LS.
LS (IP-tala skráð) 22.9.2009 kl. 23:14
Uppi við örkum á hjara
undir mun hlýnunin mara.
Ilurinn fór
og enn kemur snjór
því árstíðir koma og fara.
Höskuldur Búi Jónsson, 23.9.2009 kl. 08:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.