4.9.2010
Mjög útlenskt kvöld

Það var óvenju hlýtt myrkrið sem lagðist yfir í gærkvöldi. Svo hlýtt að maður á þessu alls ekki að venjast. Mjög óíslenskt í alla staði og man maður ekki annað. Alla veganna ekki svona seint að sumrinu. Það voru vitanlega hlý síðkvöld í ágúst 2004, þeim gleymir maður seint, en ég tek ekki með þær nætur fyrr að sumrinu þegar rétt svo nær að skyggja og nær því þó.
Af öllum landmönnum held ég að Ísfirðingar hafi nú samt upplifað einna sérstökustu nóttina í veðurfarslegu tilliti. Þar var hitinn að hækka í allt gærkvöld og náði hámarki um 18,1°C nærri miðnætti. Hann "féll" síðan niður í 13 stig kl. 02. Gaman væri að heyra hér í athugasemd upplifun einhvers fyrir vestan á gærkvöldinu.
Eins og ég hef áður rakið að þá er þessi loftmassi sem er yfir landinu nú með hreinum ólíkindum þó svo að hámark hitans á landsvísu í gær hafi orðið lítið eitt lægra en búast hefði mátt annars við. 23 stiga hiti í september er þó bara alveg hreint ágætt, en þó langt frá meti mánaðarins.
Veðuratburðir hér og nú | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.9.2010
Hitamet á Grænlandi í dag !
Eins og Óskar Sigurðsson bendir á í athugasemd við færsluna um óvenju hlýtt loft yfir landinu að þá er líka hlýtt sums staðar á Grænlandi. Hann segir að hitinn í dag hafi farið í 23°C í Nuuk. Á veðurkorti Dönsku Veðurstofunnar yfir Grænland má sjá hitatölur frá því í morgun. Þá mældist 21,6°C í flugvellinum í Nuuk.
Danska Veðurstofan, né heldur fjölmiðlar í Danmörku eru ekki farin að fjalla um þessi óvenjulegu hlýindi sem verið hafa í dag langt norður eftir allri vesturströndinni. Samkvæmt þeirri eigin metatöflu yfir mesta mælda hita í hverjum mánuði er mæling dagsins í Nuuk hitamet fyrir september (a.m.k. frá 1958, en það er upphafsár töflunnar.). Skráð hitamet september er 21,0°C í Narsarsuaq 1996.
Í nótt og fyrramálið slær síðan til á austurströndinni, við Scoresbysund og þar um slóðir. Hlýindi loftmassans þar yfir eru með miklum ólíkindum, en niðri í firðinum hefur enn sem komið er ekkert orðið neitt hlýtt. Geri snarpan vind þarna rýkur hitinn hins vegar upp.
Það verður líka fróðlegt að sjá hvernig hitafarið þróast hér á landi á morgun. Í dag varð hæstur hiti 23,0°C á Húsavík og áreiðanlega einn allra besti dagurinn þar. Það merkilega er að loftið er enn að hlýna yfir landinu.
Viðbót 4. sept. Dansk Veðurstofan hefur staðfest 24,9°C í Nuuk og þar með glæsilegt hitamet í septmeber, næstum fjórum stigum hærri hiti en eldra met!
Veðuratburðir hér og nú | Breytt 4.9.2010 kl. 09:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.9.2010
Jarlinn í hámarki
Fellibylurinn Eerl eða Jarl er um það bil að ná hámarksstyrk sínum úti á Atlantshafi. Könnunarflugvél flaug yfir augað í nótt og sleppti kanna. Hann sendi til baka þær upplýsingar að í miðju væri loftþrýstingur 928 hPa. Einnig var flogið inn í bylinn og þess getið að við NA-vegg hans væri vindur í 700 hPa fletinum um 140 hnútar (72 m/s). Áætlaður mesti vindur við jörðu er 125 hnútar (64 m/s). Allt þetta gerir það að verkum að Earl flokkast sem 4. stigs fellibylur.
Upp úr þessu fer hann að veikjast á leið sinni til NV og síðar NA yfir svalari sjó. Við það endurnýjast sá gufunararmi sem heldur kerfinu gangandi ekki í nægjanlegum mæli og þrýstingur í miðju tekur að stíga. Það lítur út fyrir að jaðar fellibylsins sleiki mestan hluta austurstrandar Bandaríkjanna, en miðjan sjálf og hvössustu vindarnir og mestu öldurnar að austanverðu ná ekki landi, nema kannski síðar meir norður undir Nova Scotia eða þar um slóðir.
Mikill viðbúnaður er í mörgum fylkjum Bandaríkjanna eins og við má búast.
Myndin er tekin af Jarli 30. ágúst úr mönnuðu geimstöðinni ISS.
1.9.2010
Óvenjuhlýtt loft á leið til landsins
Sá loftmassi sem hingað er væntanlegur virðist óvenjulega hlýr, sérstaklega ef mið er tekið af því hvað langt er liðið á sumarið. Ég ræddi hér um síðustu helgi um þátt leifanna af fellibylnum Danielle í því hversu kjarni þessa lofts myndi verða hlýr.
Nú er það komið á daginn eða lægð hér fyrir sunnan er til orðin upp úr Danielle og berst hún til norðurs og síðar norðvesturs fyrir suðvestan land, reyndar án þess að dýpka að tiltölu. Hún því hjá okkur aðeins óbein áhrif. Á sama tíma er háþrýstingur suðausturundan. Hámark þessara hlýinda verða sennilega á föstudag og meðfylgjandi spákort hefur gildistíma kl. 12 þ. 3. sept. (Af Brunni VÍ). Línan sem merkt er 560 liggur í sveig langt norður fyrir land. Þessa mælistiku köllum við spáveðurfræðingar þykktina. Hún er mælikvarði á það hversu loftið er hlýtt í neðri hluta veðrahvolfsins. Á bestu dögum hvers sumars nær þykktin rétt svo 560, en algengt sumargildi hennar er um 540-548 á meðan 528 er síðan nálægt frostmarki. Það að hún nái 562, eins og þarna sést verður ekki nema í mestu hitabylgjum og hæst hefur þessi vísitala orðið hérlendis um 564-565 s.s. eins og í ágústhitunum eftirminnilegu 2004.
Á föstudag er spáð skilum með úrkomu um vestan- og suðvestanvert landið. Það fer hins vegar eftir einkum tveimur þáttum hve hátt kvikasilfurstigið nær á Norður- og Norðausturlandi. Mest hvort sólin nái að skína og líka verður vindur að verða nægur til að halda aftur af svölu sjávarloftinu.
Á morgun verður hins vegar nokkuð bjart á Vestfjörðum og í Húnaþingi. Sigurður Þór segir í yfirliti sínu um hlýja daga í september að þar hafi hiti ekki náð til þessa að komast í 20°C í september. Ég tel frekar líklegt að sú verði aftur á móti raunin á morgun og þá jafnvel á fleiri en einum mæli.
Veðuratburðir hér og nú | Breytt s.d. kl. 19:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.9.2010
Ágúst í rúmum 12°C í Reykjavík !
Þó svo að það hafi gert frekar svalan kafla í nokkra daga eftir 20. ágúst, nær ágúst engu að síður því í Reykjavík að komast upp fyrir 12°C í meðalhita. Slíkt er fremur fátítt, en bæði 2003 og 2004 var nokkru hlýrra en nú, enda gerði þá engan kuldakafla líkt og í ár. Mánuðurinn er kannski sá 4. eða 5. hlýjasti í röð ágústmánaða í a.m.k. 150 ár.
Nýliðnir sumarmánuðirnir þrír, júní, júlí og ágúst urðu því allir með tölu mjög hlýir í Höfuðborginni og einkum og sér í lagi júní. Saman eru þeir í rétt rúmum 12 stigum, og álíka hlýtt varð 2003. Saman raða þessi tvö sumur á topp bestu sumra í Reykjavík. Slá meira að segja hið goðumlíka sumar 1939 ref fyrir rass. En þá verður að hafa í huga að það árið eða um sama leyti og heimstyrjöldin braust út varð til viðbótar hlýtt í september. Venja er að telja september til sumarmánaða og því er réttara við allan samanburð á milli sumra að bíða eftir september. Og víst er að hann fer af stað með miklum hitum um land allt.
Sennilegt þykir mér einnig að þessa fyrstu átta mánuði ársins hafi heldur ekki verið hlýrra í sögu mælinga í Rvk. en einmitt nú, að undanskyldu árinu 2003.
Veðurstofan mun næstu daga reikna út fyllri tölur og eins fyrir nokkra aðra staði en Reykjavík. Þar á bæ eru líka ágætar forsendur til endanlegarar röðunar þessa gæðasumars í samanburði við önnur.
Veðuratburðir hér og nú | Breytt s.d. kl. 00:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2010
Himnabros
Eiður Svanberg Guðnason smellti af meðfylgjandi mynd þegar hann var staddur á Nesjavöllum að morgni dags í síðustu viku. Honum fannst þetta vera heldur óvenjulegur regnbogi og þegar ég spurðist áfram fyrir um það í hvaða átt hann hefði beint linsunni var svarið að það hefði verið nánast beit upp í loftið eins og Eiður orðaði það.
Ljósfyrirbærið sem þarna kemur fram er ekki eiginlegur regnbogi, heldur ljósbrot ískrystalla hátt á himni ofan sólarinnar. Á ensku kallast þessi tegund ljósboga Circumzenithal arc. Um er að ræða efri snertibaug af sérstakri gerð rosabaugs umhverfis sólu. Á bak við þessa gerð rosabaugs eru mikil ljósbrotsfræði, en þekkist á því að boginn verður ekki lengri en um fjórðungur hrings og er hann rauður að utanverðu, en blár innantil. Er oft vegna lögunar sinnar kallaður "a smile in the sky" og við getum þýtt sem himnabros. Önnur forsenda er sú að sólin getur hæst verið í 32,2° yfir sjóndeildarhringnum til að mynda slíkan ljósbaug og líklegast er að það gerist þegar sólarhæð er 22°. Ljósið brotnar í ískrystölum blikuskýja hátt á himni og í mestum mæli við þessa tilteknu sólarhæð. Hér má lesa meira og dýpri eðlisfræði hér.
En skýringamyndin hér að neðan er alveg ágæt og sýnir afstöðu sólar og hinna ýmsu ljósboga sem komið geta við sögu. Þar semmerkt er Parhelia köllum við nú gíll (t.h.) og úlfur (t.v.)
Fallegar myndir | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

Fylgst hefur verið með fellibylnum Danielle á Atlantshafi í meira en viku. Allan þann tíma hefur hann verið langt frá landi og ekki gert nokkurn usla eftir því sem ég kemst næst. Á föstudag var hann greindur um tíma sem fjórða stigs fellibylur og þrýstingur í miðju 942 hPa. Síðan þá hefur hann borist yfir heldur svalari sjó og veikst hægt og bítandi. Hann hefur þó enn öll merki fellibyls.
Ég segi að Danielle hafi ekki valdið neinum usla, en eftir því hefur verið tekið að tölvureiknaðar langtímaspár (6-10 dagar) hafa gjörsamlega verið úti að aka síðustu vikuna og ýmislegt bendi til þess að fellibylurinn eigi þarna a.m.k. einhvern hlut að máli. Alla veganna má reikja stækkandi villu í útreikningunum suður á Atlantshafa á slóðir hans.
Á morgun á hádegi gera spár ráð fyrir því að Danielle verði á þeim stað eins og meðfylgjandi kort sýnir. Þá þegar verður bylurinn kominn inn í vestanvindabeltið eða skotvindakerfi Norðurhvelsins. Við það eitt getur ýmislegt gerst, m.a. það að bylurinn færist í aukana. Ekki þá sem fellibylur heldur gefi nýrri lægð aukakraft með sínu raka hitabeltislofti og þeirri öflugu hringhreyfingu sem til staðar er.
Fellibyljaleyfunum er sem sé spáð nýjum vexti og rétt að hafa augun hjá sér á morgun á þriðjudag, hvað í vændum getur verið. Í dag er líklegasta þróunin að lægð með Danielle innanborðs vaxi og verði alldjúp bæði sunnarlega og vestarlega á Grænlandshafi og mestu vindurinn verði því hér víðs fjarri. Spákortið gildir fyrir aðfaranótt fimmtudags (GFS, Washington, 2.sept kl. 00). Óbeinu afleiðingarnar verða þá þær að hlýtt loft ættað langt sunnan úr höfum á greiða leið hingað norður eftir, yfir Ísland og lengst norður með A-strönd Grænlands.
Fari svo gæti orðið bærilegast sumarhiti norðan- og norðaustanlands á miðvikudag, fimmtudag og föstudag.
En þegar þessir hitabeltisstormar taka upp á því að þvælast norður í vestanvindabelti okkar slóða er vissara að fylgjast vel með, sérstaklega þegar ekki er svo langt um liðið frá því að bylurinn var af fullum styrk. Síðan má allt eins gera ráð fyrir því að annar sem hefur nafni Earl komi í kjölfarið.
28.8.2010
Næturfrost á Suðurlandi
Á yfirliti Veðurstofunnar eftir nóttina fyrir sjálfvirku hitamælana má sjá að lágmarkshitinn fór niður fyrir frostmark á a.m.k. þremur stöðum á Suðurlandi. Aðra nóttina í röð mældist frost á Þingvöllum eða -0,2°C. Í Þykkvabænum örlítið meira eða 0,7°C og á svipuðu róli var lægsti hitinn í nótt á Kálfhóli á Skeiðum. Nú er það svo að hiti er mældur í tveggja metra hæð, en í þeirri sterku útgeislun sem var frá því í gærkvöld í heiðríkjunni og logninu verður talsvert kaldara alveg við jörðu.
Sjálfur lá ég í tjaldvagni við fossinn Faxa í Biskupstungum og ég held ég hafi ekki fyrr átt jafn kalda nótt í tjaldi. Þó var ég ekki á jörðinni heldur aðeins frá. Var ekki nágu snöggur út í morgun til að sjá hvort hefði hélað. Maður sá svo sem hvað var í vændum í gærkvöldi, því um leið og sólin settist snöggkólnaði. Sá t.a.m. að í Árnesi í Gnúpverjahreppi að þá féll hitinn út tæpum 11 stigum niður í 1,5°C á tveimur klukkustundum eða frá kl. 20 til kl. 22. Meðfylgjandi línurit af vef VÍ er sýnir þetta vel.
En mikið óskaflega er nú veðrið fallegt þennan morguninn fyrir austan fjall í Biskupstungunum. Bara að það verði aðeins meira skýjað næstu nótt til að tempra útgeislun jarðarinnar.
Veðuratburðir hér og nú | Breytt s.d. kl. 16:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.8.2010
Veðurhorfur helgina 27. til 29. ágúst
Föstudagur 27. ágúst:
Yfir landinu verður hæðarhryggur og hæglætistveður. Vindur verður þó aðeins vestlægur. Að heita má úrkomulaust um land allt og léttskýjað víðast hvar. Þó verður sólarlítið og skýjað af háskýjum vestan- og norðvestanlands. Hitinn verður víða þetta 14 til 16 stig yfir hádaginn í sólinni. Svalt hins vegar um nóttina, eða 4 til 7 stig. Suðvestantil er aftur á móti gert ráð fyrir lítilsháttar vætu um nóttina.
Laugardagur 28. ágúst:
Áfram hægur vindur á landinu og mjög víða léttskýjað. Á annesjum norðanlands og norðaustanlands, leggur þó golu af hafi og þar gæti orðið þokusúld. Þar verður heldur svalt eða um 5 til 7 stiga hiti. Annars staðar er gert ráð fyrir sæmilegum hita að deginum eða 12 til 17 stig. Allmikill hiti dags og nætur og sums staðar kólnar alveg niður undir frostmark í heiðríkjunni um nóttina.
Sunnudagur 29. ágúst:
Hitaskil nálgast úr vestri og um miðjan daginn fer að rigna vestanlands og upp úr því einnig á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi svo og á Suðurlandi austur undir Eyjafjöll. Um leið snýst vindur til SV-áttar, víða verða 5 til 8 m/s og heldur vaxandi eftir því sem líður á daginn. Bjartviðri austan- og suðaustantil og veður fer almennt séð hlýnandi, ekki síst norðaustantil.
Vonandi verða Vestmannaeyingar til aðstoðar við að upplýsa þetta mál.
Það er vissulega fátítt að veðurmælar, nú eða önnur tæki til náttúruvöktunar verði fyrir barðinu á skemmdarvörgum.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 1790783
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar