"Vonskuveður og mikill snjóbylur"

547081a.jpg

Mér fannst hún nokkuð kúnstug þessi mynd Hafþórs Hreiðarssonar sem birt var á mbl.is af opnun mikillar samgöngubótar um Hófaskarðsleið á Sléttu.  Fyrirsögnin sagði að vonskuveður hafi verið við opnunina þegar klippt var á borðann. Sjá má herramenn í drifhvítum frökkum. En var veðrið svo vont sem fréttin gefur til kynna og var sannkallaður snjóbylur þegar skærin voru munduð ?

Nei segi ég.  Rétt fyrir hádegi í dag gekk þarna á með éljum og vindur var vart meiri en 6-7 m/s af vestri.  Við verðum að gæta að árstímanum, komið er fram í nóvember.  Eins hvar á landinu hinn nýi vegur er.  Kalsaveður og él af hafi er hið venjubundna veður um norðaustanvert landið að vetrinum.  Í dag var hvorki betra, né verra en búast má við á þessum árstíma.  V- og NV-áttin verður þarna oft miklu mun harðari og snjókoman blindari í nóvember en menn upplifðu þarna í dag. Vissulega gerir líka oft fallega stilludagaa með frosti á þessum árstíma, en slíkt veðurlag var einfaldlega ekki í boði í dag. En hvað sem öðru líður er allt tal um vonskuveður og snjóbyl talsverðar ýkjur að mínu mati !

mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Fekari upplýsingar um veginn og opnunina í dag hér á vef Vegagerðarinnar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Þessi mynd af snjóköllunum þremur er alveg frábær.

Emil Hannes Valgeirsson, 7.11.2010 kl. 01:12

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst þetta leiðindatíð sem er að fara með árshitann í vaskinn! Nokkuð oft eru líka hlákur og sæmileg hlýindi á þessum árstíma.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.11.2010 kl. 01:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 1786845

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband