IRENE spáð sem 3.stigs fellibyl

581798main_irene_a2011234_1520_2km.jpgSíðasta sólarhringinn hefur IRENE færst mjög í aukanna og er spáð að nái styrk 3. stigs fellibyls síðar í dag. Þetta koma í ljós m.a. þegar sleppt var veðurkanna niður í auga bylsins og  greindi hann loftþrýsting í miðju hans 966 hPa.  Nú er spáð mesta vindi yfir 100 hnútum (ca 51 m/s), sem í mínum huga greinir stóra fellibyli frá þeim sem minni eru.  Bylurinn er nú þegar búinn að valda nokkru tjóni á Poerto Rico, en stefnan er nú á Bahamaeyjar.  Að öðru leyti er ekki gert ráð fyrir á IRENE gangi á land skv. reiknuðum spám fellibyljamistöðvarinnar á Miami, en hann muni samt "sleikja" austurströnd Bandaríkjanna næstu daga og valda heilmiklu fári næstu daga.  Ekki síst þaðr sem litlu má muna að IRENE geti haft mun meiri áhrif þar.

Tunglmyndin er af bylnum og frá því í gær. NASA Goddard/MODIS Rapid Response Team.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heitir fyrirbrigðið ekki "Irene"?

Þorkell Guðbrands (IP-tala skráð) 24.8.2011 kl. 21:28

2 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Vissulega Þorkell ! Þú hefur vissulega ætíð augun opin.

ESv

Einar Sveinbjörnsson, 25.8.2011 kl. 08:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 1786842

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband