Kvöldskúr í Tungunum

 

biskupstungur_sku_769_r_4sept2011_sigur_ur_h_magnu_769_sson_1108080.jpg

 

 

Sigurður Hjalti Magnússon á Högnastöðum í Hrunamannhreppi sendi mér þess skörpu mynd sem tekin var kl. 20:35 í gærkvöldi (4. sept).

Þær voru einmitt nokkuð síðbúnar síðdegisskúrirnar á Suðurlandi í gær.  Sólin lægra á lofti en um mitt sumar og þar með minni kraftur í uppstreymi til myndunar skúrskýja. Í gær, eins og rakið var í síðasta pistli, var tiltölulega hlýtt loft í lægri lögum, en heldur kaldara ofar og slíkt ástand hjálpar til við skúramyndun. 

Þessi skúr í kvöldsólinni í Biskupstungum er skýrt afmörkuð. Myndin er tekin ofan við Haukholt í Hrunamannahreppi. Bærinn fyrir miðri mynd er að ég held Hjarðarland og Stekkholt þar handan við í miðri skúrinni. Gufustrókarnir frá Syðri-Reykjum eru þarna til vinstri. 

Getið var um úrkomu í grennd í veðurathugun á Hjarðarlandi kl. 21 og við vitum nú nákvæmlega hvar sú grennd var séð frá athugunarmanni af hlaðinu á Hjarðarlandi !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 18
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 1786816

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband