20.10.2011
Morgunmynd úr Mýrdalnum
Þórir Kjartansson í Vík sendi mér þessa mynd sem tekin var að á þriðjudagsmorgunn (18. okt). Við sjáum mikinn sandmökk sem rís hátt frá jörðu. Vík er er forgrunni og það ber í Hjörleifshöfða í austri. Þórir segir að Hjörleifshöfðinn hefði horfið hvað eftir annað þegar verst lét.
Þennan morgun var allhvasst af norðri. Talsvert skjól þó undir fjöllunum við Vík, en austur á Mýrdalssandi var ekkert skjól að hafa og mælistöð Vegagerðarinnar mældi þetta 10-14 m/s. Ekki var hvassara en það, en samt sem áður var sá vindur nægur til að lyfta sandmekki hátt í loft upp.
Leiða má af því líkur að mest af þessu efni sé komið úr farvegi Múlakvíslar eftir jökulhlaupið í sumar sem tók af brúna. Eða eins og Þórir getur réttilegar "..bróðurhlutinn í þessu hafi verið úr þessum jökulleir sem kom með flóðinu. Það er ótrúlegt hvað situr eftir af þessu á stöðum þar sem sem flóðið lónaði uppi."
Það er trúlegt að þessi fíni jökulleir verði á ferðinni næstu árin þegar þurrir vindar blása. Fyrir Mýrdælinga er jafn heppilegt að slíkt gersit oftast í N- eða NA-átt og sandinn ber þá á haf út.
Flokkur: Fallegar myndir | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 9
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 59
- Frá upphafi: 1788777
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 55
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.