Listræn tilþrif vefmyndavélar Vegagerðarinnar

hellisheidi5nóv2011.jpgÞó vefmyndavélar Vegagerðarinnar séu afar góðar til síns brúks eru myndgæðin oftast eins og búast má við.  Maður sér einfaldlega það sem linsan í staurnum fangar hverju sinni. Stundum er myndin yfirlýst á móti sólarljósinu og í annan tíma markar vart fyrir umhverfinu þó full dagsbirta sé.

En það kemur líka einstaka sinnum fyrir að það koma myndir úr þessum tækjum á vefnum sem halda mætti að teknar hafi  verið af góðum ljósmyndara með næmi fyrir samspili ljósi og skugga og andstæðum lita í umhverfinu.

Þessi mynd hér til hliðar ofan af Hellisheiði nærri sólarhádegi í dag er einmitt af þeim toga að mínu mati.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.11.2011 kl. 18:43

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Birtan er oft myndræn í útsynningséljagangi.

Emil Hannes Valgeirsson, 5.11.2011 kl. 18:49

3 identicon

Hvernig væri að koma af stað ljósmyndasamkeppni vegamyndavéla?

Jón Atli (IP-tala skráð) 6.11.2011 kl. 12:52

4 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ljósmyndasamkeppni vegamyndavéla er góð hugmynd. Gæti líka vera ljósmyndasamkeppni vefmyndavéla almennt. T.d. eru oft fínar myndir af vefmyndavélum Mílu að ógleymdri vefmyndavél Veðurstofunnar við Bústaðaveg.

Emil Hannes Valgeirsson, 6.11.2011 kl. 15:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 1786602

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband