20.12.2011
Vetrarfærð á vegum landsins
Meðfylgjandi færðarkort af vef Vegagerðarinnar kl. 11:52 sýnir að færðin er frá þvi að vera hálkublettir á vegum upp í það að vera þæfingur og þungfært, þ.e. þar sem ekki er á annað borð ófært (að mestu vegir án vetrarþjónustu).
Fátítt er að ekki einn einasti vegkafli á landinu skuli vera grænn sem merkir að það sé greiðfært. Þýðir að vegurinn sé auður. Við nána eftirgrennslan finnast þó stuttir "grænir" vegbútar á kortinu, þar sem jarðgöngin eru. S.s. Hvalfjarðargöngin, Vestfjarðagöng og göngin beggja vegna Héðinsfjarðar.
"Öruggur staður til að vera á" eins og Brimborg mundi trúlega orða það væri kortið á þeirra vegum.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 1790126
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 40
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.