30.1.2012
NAO í Landanum
Kom mér nokkuð á óvart í dag þau viðbrögð sem ég fékk á þann hluta sjónvarpsþáttarins Landans sem sýndur var í gærkvöldi á RÚV. Þar gerði ég tilraun til að útskýra tíðarfarið og Norður Atlantshafssveifluna (NAO) það sem af er vetrarins.
Hafði líka gaman af því að taka þátt í gerð efnis um veður þar sem hefðbundin tölvugrafík var hvíld og notast við óhefðbundnar og dálítið "gamaldags" leiðir til miðlunar. Snjókúlan eða hálfhnötturinn sem Úlfur Grönvold grafíkmeistari og æskufélagi minn átti heiðurinn af er nú vísast með öllu horfinn eftir leysinguna síðustu dægur í bakgarði Efstaleitisins.
Hér er tengill á þennan hluta Landans og önnur hér á þann hluta sem sýndi öðlinginn og sannkallaðan "snjóathugnarmann" Íslands Odd Pétusson ásamt Erni Ingólfssyni að störfum í snjógryfju ofan Skutulsfjaðar.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 23:35 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 51
- Frá upphafi: 1788784
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 49
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Verður þá engin 'hnatthlýnun' á Íslandi í ár Einar?
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 30.1.2012 kl. 23:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.