Hitastigið fór yfir 30 stig í Osló í dag

Busl í Osló 8.júníNorska Veðurstofan greinir frá því að hitastigið síðdegis hafi farið í 30,9 stig við hús Veðurstofunnar í Osló á Blindern.  Þetta er þó ekki met en fara þarf meira en öld aftur til að finna eitthvað sambærilegt. Fyrr í mánuðinum eða 5. júní árið 1897 mældist hitinn rúmlega 31 stig í Osló.

Mynd fengin af Dagbladet.no

Í þessum annars veðursæla höfuðstað Norðmanna hefur mælst hærri hiti í júní eða 32,8 stig, en það var 27. júní 1988.

Af norkum fjölmiðlum að dæma er þjóðin, eða sá hlutin hennar sem býr í suðurhlutanum hálfpartinn að ganga af göflunum (í jákvæðri merkingu) í þeirri veðurblíðu sem verið hefur að undanförnu.  Vel er hægt að svamla í sjónum með Oslóarfirði, enda hann mun hlýrri nú en venja er til svo snemma sumars.  Greint er frá því að sjávarhitinn sé staðbundið kominn í 21 stig.  Það þykir mér ótrúlegt, en rengi þó vitanlega ekki þær fréttir.

Áfram er spáð hitabylgju í S-Skandinavíu næstu daga, en frá þriðjudegi mun hitastigðið eitthvað rétta sig af samkvæmt veðurspám.

 


mbl.is Hitamet slegið í Suður-Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 17
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 1786815

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband