Skýrsla vísindanefndar um loftslagsbreytingar var kynnt í vikunni rétt eins og varla hefur farið fram hjá nokkrum áhugamanni um veður og veðurfar. Sjálfur skaust ég í bæinn til að vera viðstaddur kynninguna og aftur í fríið. Fyrst núna kemst maður til þess að bæta lítillega við ágæta umfjöllun fjölmiðlanna.
Halldór Björnsson formaður vísindanefndarinnar fór vítt yfir sviðið í kynningu á hinni 118 síðna skýrslu. Á ansi skemmtilegri mynd Morgunblaðsins er rýrnun jökla framan af síðustu öld beinlínis slett framan í Halldór !
Í kynningunni staldraði hann lengst við ágæta skýringamynd sem mér sýnist engir hafa fjallað um. Hér að neðan er sýnd (úr fyrirlestri Halldórs) fyrri myndin. Þessi leið er ágæt til að gera grein fyrir áhrifum veðurfarsbreytinga á ýmsa þætti umhverfis, náttúru og samfélags og er í raun svipuð og farin hefur verið í umfjöllun IPCC um áhrif veðurfarsbreytinga á hnattræna vísu.
Efst má sjá spönn þriggja svokallaðra sviðsmynda breytinga til ársins 2100. A2 gerir ráð fyrir mestri losun gróðurhúsalofttegunda samfara fjölgun mannkyns, en B1 að það náist að sporna gegn losun af einhverju marki.
Sjá má af skýringamyndinni að ef hér hlýnar um meira en 3°C verður hafís að mestu úr sögunni hér við land og að það séu vísbendingar um að stormum fækki hér við land hækki hiti um ekki nema um eina gráðu. Líka það að ef kólnar aðeins lítið eitt frá núverandi ástandi (í upphafi aldarinnar) taka jöklar að ganga fram að nýju.
Skýrslu vísindanefndarinnar má nálgast á vef umhverfisráðuneytisins hér.
Meginflokkur: Lengri greinar úr ýmsum áttum | Aukaflokkur: Veðurfarsbreytingar | 8.8.2008 (breytt 26.8.2009 kl. 14:10) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er fróðleg skýrsla, hvernig svo sem hinu almenna spásagnargildi hennar er háttað.
Það er erfitt að koma auga á hið neikvæða fyrir Ísland við þá hlýnun veðurfars sem þarna er gert ráð fyrir að gæti orðið. Hækkuð sjávarstaða gæti þó væntanlega valdið einhverjum vandkvæðum. Þau ætti þó að vera hægt að yfirstíga. En stærri og afkastameiri gróðurþekja, minni líkur á hafís eða jafnvel algert ísleysi, betri afköst ræktarlands og nýjar nytjategundir í ræktun. Allt er þetta alveg prýðilegt. Gott væri það einnig ef hér drægi úr stormum, sem eru eitthvert háskalegasta fyrirbæri íslensks veðurfars. Í heild er ekki hægt að segja annað en að það sé full ástæða til bjartsýni fyrir Íslands hönd ef spá skýrslunnar gengur eftir. Hið kalda loftslag hér þolir vel þriggja Celciusstiga meðaltalshækkun á ári. Hér hefur lengi verið „ofgnótt jökla“.
Kristján Sveinsson (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 10:32