Ekki hagstæðara áramótaveður hérlendis í 10 ár

Ísland 31.des 2006

Það var nánast með ólíkindum allt að því lognið í gærkvöld, gamlárskvöld.  Eins og sést á Íslandskortinu sem hefur gildistíma á miðnætti var veðrið með allra besta móti um land allt.  Vissulega gekk á með éljum norðantil og sums staðar var snjómugga, en vindurinn var afar hægur og lognið í Eyjum vekur sérstaka athygli.

Fyrir 10 árum, þ.e. 1996 var veðrið heilt yfir enn betra á landinu.  Hægur vindur samfara frostleysu.  Úrkomulaust var og stjörnubjart víðast hvar.  Þó var skýjað norðanlands.

Í gærkvöldi fór það fór heldur ekki fram hjá manni  skömmu eftir miðnætti hvað púðurreykurinn hékk lengi í loftinu, þar sem "náttúruleg loftræsting" var seinvirk í hægum SA-andvaranum.

Mökkurinn koma vitanalega fram í mengunarmælingum Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar, en svifryk  (PM<10µm) fór í 1.820 µg/m³ kl. 01:30 í mælistöðinni við Grensásveg.  Þetta er mun hærra gildi en í fyrra á sömu stöð (hægt að sækja gögn), en þá var toppurinn tæplega 1.000. Lúðvík Gústafsson hjá Umhverfissviðinu var reyndar með eitthvað hærri tölur í fréttum fyrir áramótin.Til samanburðar þykir það hinsvegar mikið þegar gildið fer yfir 500 µg/m³ á dögum þegar uppspænt malbik o.fl. safnast upp á stilltum og umferðarþungum dögum.


Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 1786607

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband