Óveðrið í Færeyjum

Þær eru að tínast inn tölur og mæligildi fyrir óveðrið mikla.  Ljóst er að tjón hefur orðið a.m.k. töluvert ef ekki mikið víðsvegar um eyjarnar.

Met_Office_25.nov2011.pngLægðin Berit var greind 944 hPa á miðnætti  af bresku Veðurstofunni (kort frá Met Office) eða álíka djúp og spáð hefði verið. Þá var veðurhamurinn um það bil í hámarki.  Í 850 hPa þrýstifletinum komu fram gildi vinds sem maður sér þar aðeins sárasjaldan, þ.e. vindröstin í um 900 til 1.000 metra hæð náði hágildi sem nam um 50 m/s.  Þetta sést á meðfylgjandi greiningu HIRLAM frá því á miðnætti þar sem næst "tvöföld flöggun" vindörvar á einum stað.  Eitt flagg jafngildir 25 m/s. Vegna hins lága þrýstings við jörðu er hæð 850 hPa þrýstiflatarins líka mun lægri en að jafnaði (1.250-1.400 m).  Því er þessi harða vindröst líka nær jörðu en annars væri.  Það þarf því ekki að undra að á Akrabergi syðsta odda Suðureyjar hafi verið að mælast yfir 40 m/s (10 mín meðalvindur).

HIRLAM_25nov2011.pngSkoði maður aftur í tímann líkist þessi lægði og veðrið allt óveðri sem Færeyingar gleyma seint rétt fyrir  jólin 1988 eða 21. til 22. desember.  Þá varð feykilegt tjón um allar eyjarnar og heilu mannvirkin fuku á haf út eins og nú virðist hafa verið raunin.   Sú lægða var einnig mjög kröpp og álíka djúp.  Aðdragandinn og dýpkunarferlið var þó aðeins með öðrum hætti svo og braut hennar sem þá var meira til austurs skammt norðan eyjanna.  Þá kom óveðrið mönnum meira í opna skjöldu, enda spálíkön vanþróaðri og ekki óalgengt á þeim árum að dýpkun sprengilægða reiknaðist illa eða alls ekki.

Áhugmönnum um veðursamanburð er bent á ágæta grein sem Henrik Voldborg skrifaði í Vejret, tímarit danskra veðurfræðinga eftir óveðrið 1988. Hún er vitanlega á góðri dönsku og fylgja myndir og kort.

Hér er tengill: http://dams.risoe.dk/blad/pdf/Vejret38.pdf

Viðbót kl. 12:30:  Danska Veðurstofan búin að gefa út útgildi vindsins í gærkvöldi.


Maks middelvindMaks vindstød
Akraberg (99 moh)43,2 m/s56,6 m/s
Thorshavn (54 moh)31,3 m/s45,8 m/s
Kirkja (54 moh)38,6 m/s

46,3 m/s

 10 mín meðalvindurinn til vinstir og vindhviður til hægri. Akraberg er viti syðst á Suðurey.

Í veðrinu 1988 var hæsta gildið 41,1 m/s á Akrabergi og 30,9 m/s í Þórshöfn. Á þann mælikvarða var veðrið í gær enginn eftirbátur þess fyrir jólin 1988.  Jafnvel verra ef eitthvað er. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll nafni

Hér er hlekkur á veðurstöðvar Færeysku vegagerðarinnar:

http://landsverk.fo/Default.aspx?pageid=16279

Sjá má á veðurstöðinni í Norðradalsskarði (http://www.lv.fo/fr/plot3.php?day=24&month=11&year=2011&station=F-33) að meðalvindur fór í rúmlega 50 m/s um miðnætti í gær. Fréttum það frá Færeyjum að vindmælirinn hafi mettast í 54 m/s.

kv

Einar Magnús

Einar Magnús Einarsson (IP-tala skráð) 25.11.2011 kl. 12:22

2 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Þakka þér fyrir þessar tengingar  Einar Magnús !

Var einmitt að fylgjast með Norðradalsskarði í gærkvöldi, ásamt fleiri stöðvum. 

ESv

Einar Sveinbjörnsson, 25.11.2011 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1790574

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband