Stefnir í einn allra hlýjasta júlí í Reykjavík

Nú þennan næst síðasta daga mánaðarins er ekki úr vegi að skoða meðalhitann í Reykjavík.  Mjög lítið virðist vanta upp á að þessi júlí 2010 nái að jafna metmánuðina 1991 og 1939 en í bæði þau ár var meðalhitinn 13,0°C, sem er vel að merkja ákaflega hlýtt fyrir íslenskan sumarmánuð.  Flestir hina síðust júlímánaða hafa verið mjög hlýir, en þessi nú virðist ætla að skjóta hinum ref fyrir rass, þ.e. í Reykjavík.

Á landsvísu er júlí 1933 álitin vera sá hlýjasti.  Hann mun halda þeim sessi og líka þeir sem næstir koma, þ.e. 1939 og 1991. Spurning hvar síðan 2010 kemur þar á eftir, en höfum í huga að ekki hefur verið neitt sérlega hlýtt á Norður- og Norðausturlandi, þó vissulega hafa komið virkilega góðir sumardagar, sérstaklega nú upp á síðkastið. 

Við bíðum uppgjörsins eftir helgina  frá Veðurstofunni með óþreyju !


Af rigningarleysi að sumri

Ég var á ferðinni norður Strandir um helgina, greinilegt var í Steingrímsfirði að þar liðu tún fyrir þurrk og voru að verða heiðgul á köflum.  Sama ástand var í Saurbænum í Dölum þar sem gróður á ræktarlandi leið fyrir skort á úrkomu. 

Undanfarin sumur hafa einkennst af takmarkaðri úrkomu, sérstaklega í júní og júlí, en þegar halla tekur sumri er kemur fram í ágúst hefur hins vegar talsvert rignt.  Vöntun á vætu framan af sumri er farin að virka hamlandi fyrir ræktun og nú bætist við að snjóalög voru fremur lítil til fjalla, en miðlun leysingarvatns hjálpar oft upp á sakirnar fyrir jarðvegsrakann fram eftir sumri.

Hitafrávik í 500hPa júní 2010En hverju veldur ?  Ekki er gott að segja, en ég ætla að leyfa mér að koma með tilgátu.  Þessi þurru sumur alveg frá 2007 hafa jafnframt verið sérlega hlý.  Áberandi er einnig að sjá hvað hlýtt er í háloftunum miðað við því sem maður á að venjast.  Eftir því sem hlýrra er ofantil, þeim mun stöðugra er loftið og geta þess til lóðréttrar blöndunar minnkar.  Þó svo að raki berist til landsins er eins og lítið sem ekkert verði úr úrkomunni þar loftið nær ekki að rísa nægjanlega vegna þessa stöðugleika. Við sáum hið gagnstæða dagana 12. til 16. júlí.  Þá var háloftakuldi hér yfir og voldugir skúraklakkar risu með kröftugum skúrum inn til landsins, sérstaklega sunnantil og á hálendinu, en síður við sjávarsíðuna þar sem loftið var einmitt stöðugra. 

Við sjáum þetta líka í veðurspánum.  Reiknilíkön sýna hér skil með vætu koma af hafi, en síðan er eins og bakkinn koðni niður og ekkert verði úr neinu.  Hár háloftahiti frá um 1.500 til um 6.000 metra hæð á tvímælalaust þátt í þessu. Líkönin virðast vanmeta að einhverju leyti þennan þátt, einkum þegar 4 til 5 dagar eru í væntanlegt regn.  Ég veit ekki hvað oft veðurfræðingar  hafa þurft á undanförnum árum að draga úr úrkomuspám að sumri.  Það er eins og þetta sé orðin kerfisskekkja. (Í aðdraganda komandi helgar var í upphafi gert dálítið úr úrkomuspá sunnudags og mánudags.  Í gær virtist sem sunnudagurinn ætlaði hins vegar að verða að mestu þurr og í dag er kominn "þurrkur" í væntanlegt mánudagsregn.) Spákortin á forsíðu Veðurstofunnar eru haldin þessu og að sumrinu hafa þau verið í heildina séð allt of "blaut".  Það er í það minnsta mín reynsla.

Þegar kemur fram í ágúst dregur úr hálofthitanum og það ásamt því að rakinn í loftinu eykst almennt séð framkallar rigningu frá veðraskilum eins og við þekkjum hana.

En þessa tilgátu um þátt aukins stöðugleika loftsins um hásumar þarf vitanlega að skoða betur og líta á mælingar og samanburð til að fá hana staðfesta.  Þetta er þó mín tilfinning eftir að standa mig æ oftar að því að nota hita í 500 hPa þrýstifletinum uppi í rúmlega 5 km hæð sem spástika fyrir rigningu frekar en að horfa á úrkomuspárnar sjálfar.  

Kotið sem hér fylgir sýnir frávik hita í 500 hPa fletinum (um 5,5 km hæð) í júní sl. Mánuðurinn var vissulega mjög hlýr á jörðu niðri og vissulega líka þurr. Sjá má að þarna uppi var hiti mánaðarins um og yfir 3°C yfir meðallagi (1968-1996). Gögnin eru fengin frá NCEP/NOAA vestanhafs. 


Veðurhorfur um verslunarmannahelgina

hvanneyjarviti_1013185.gifHelgarhorfurnar

 

Almennt um spánna

Það er lítið lát á blíðunni þetta sumarið.  Í það minnsta er spáð hæglætisveðri á landinu um verslunarmannahelgina og milt loft verður enn um sinn viðloðandi landið. Að mestu verður þurrt á landinu fram á sunnudag, en útlit er fyrir úrkomu á mánudag einkum sunnantil.  Óvissan er eins og oft áður í tengslum við skýjafarið, en líklegast að sólin nái að skína seinni partinn á laugardag og aftur á sunnudag, þá frekar norðan- og norðaustantil, en annars á landinu.  

 

Föstudagur 30. júlí:

Meira og minna skýjað á landinu.  Einna helst að það sjáist til sólar norðanlands og þar verður 15 til 18 stiga hiti.  Annars fremur milt á landinu líkt og verið hefur og vindur hægur.  Skil frá lægð hér suðvestur af landinu verða á leið austur og frá þeim rignir dálítið, sunnan- og suðaustanlands.  Um norðvestan- og vestanvert landið léttir mikið til þegar líður daginn.

Laugardagur 31. júlí:

Ef frá er talin lítilsháttar súld sunnanlands fyrst um morguninn er ekki að sjá annað en að víðast verði þurrt á landinu.  Áfram sama hægviðrið og hálfgerð áttleysa.  Meiri spurning um það hvort og hvar sólin nær að brjótast í gegn, en skýjað verður með köflum eins og það er kallað nokkuð víða.  Það eru þó nokkuð líklegt að almennt séð létti til eftir því sem líður á daginn. Ágætis sumarhiti verður á landinu, víða þetta 13 til 16 stig að deginum og einnig milt yfir nóttina. 

Sunnudagur 1. ágúst:

Á sunnudag lítur út fyrir að vindur verði orðinn heldur SV-lægur ef hægt verður að tala um einhverja ákveðna vindátt. Norðaustan- og austanlands ætti við þessi skilyrði að létta til og jafnframt hlýnar þannig að hægt verði að tala um 16 til 20 stiga hita á þeim slóðum.  Annars staðar verður meira skýjað, þó sólin láti nú vafalítið sjá sig stund og stund. Líklega verður alveg þurrt eða því sem næst.

Mánudagur 2. ágúst:

Á frídag verslunarmanna er að sjá sem suðlægur vindur verði heldur eindregnari og aukast þá úrkomulíkur sunnan- og suðvestantil.  Öllu bjartara þá norðanlands og austan.  Skil fara sennilega  yfir landið, þannig að norðaustantil má einnig gera ráð fyrir minniháttar vætu þegar frá líður. Enn er útlit fyrir sæmilega hlýtt loft yfir landinu.

 

 

 


Alskýjað á Íslandi

MODIS_27júlí 2010Ég veit ekki hvort að menn greini landið á þessari MODIS-mynd frá því eftir hádegi í dag ?  Jú og þó ef vel er rýnt sér í Vatnajökul og eins mótar fyrir Vestfjarðakjálkanum.  En það er eins og skýjateppi liggi yfir landinu í dag og óvíða er sólskin að ráði, en heldur ekki úrkoma sem heitið getur nokkurs staðar.  Smávægileg súld og þoka reyndar hér og þar.

Þó hlýtt sé í lofti þarf sólskin til að koma hitanum verulega upp.  Skýjabreiðan er því meginvaldur þess í dag að hitinn hefur ekki náð nema 18 stigum á landinu enn sem komið er (kl. 15) þar sem mestu hiti hefur mælst.


Hitamet í Moskvu

moskva2.jpgHitabylgjan í Rússlandi að undanförnu ætlar ekki að gera það endasleppt.  Í gær mældust þannig 37,4°C í Moskvu sem er hæsti hiti sem þar hefur mælst nokkru sinni.  Eldra metið er frá 1920.

Ég er eiginlega meira hissa á því að hitametið í Moskvu skuli ekki vera hærra, þar sem borgin liggur langt inn í landi, óravegu frá hafi. Hitamet Danmerkur er þannig 36,4°C (Holsterbro, 1975) og 38,5°C í Englandi (Faversham í Kent, 2003).

Því er spáð að hitinn gæti mælst enn hærri í Moskvu í dag og á morgun.  Sunnar í landinu er algerlega kæfandi hiti.  Í Volgograd (fyrrum Stalíngrad) er gert ráð fyrir því að hitinn verði um og yfir 40°C á morgun.

Ég segi nú bara, guði sé lof fyrir hafgoluna !

 


Jökulsá á Fjöllum í miklum ham

dettifossweb-a.jpgUndanfarna fjóra til fimm daga hefur verið hlýtt í veðri norðanlands, ekki síst á norðanverðu hálendinu. Hlýindin náðu hámarki í gær, sunnudag og fór hitinn m.a. fremst í Bárðardal í rúmlega 23 stig. Léttskýjað hefur verið á þessum slóðum og sólin náð að hita landið.  Við þessi skilyrði hefur vatn vaxið mjög í jökulánum.  Ekki síst sést þess stað í Jökulsá á Fjöllum.  Hún rennur óbeisluð til sjávar og vex hægt og rólega í hlýju og björtu veðri, ekki síst um og eftir mitt sumar, þegar tiltölulega dökkt yfirborð sífellt stærri hluta Dyngjujökuls drekkur í sig sólgeislunina og bræðir jökulísinn.

Mælingar á rennsli Jökulsár á Fjöllum sýna að hámarksrennslið var í morgun 780 rúmmetrar á sekúndu við Grímsstaði á Fjöllum (enn var reyndar að vaxa !).  Það eru talsverðar dægursveiflur í rennslinu eins og sjá má á grafinu sem fengið er frá Veðurstofunni. Við Grímsstaði skilar hámarkið sér ekki niður fyrr en morguninn eftir. Vel sést hvernig rennslið hefur verið að aukast í sumar úr um 130 rúmmetrum í byrjun júní þar til nú.

Jökulsá á Fjöllum sumarið 2010 - rennsli -VÍÞetta vatnsmagn 780 rúmmetrar á sekúndu er gríðarmikið og gerir Jökulsá á Fjöllum langmesta vatnsfalli landsins þessa dagana á meðan Þjórsá og Jökulsá á Dal eru báðar tamdar og rennsli þeirra miðlað. Dettifoss verður ákaflega tilkomumikill segir mér fólk sem komið hefur að honum í þessum ham.

Ég fæ ekki betur séð en að þetta vatnsmegin Jökulsár nú sé það mesta undanfarin sumur og jafnist e.t.v. á við stórrennslið sem gerði í kjölfar hitabylgjunar í ágúst 2004. 

Vegagerðin segir nú Öskjuleið ófæra vegna vatnavaxtanna öðrum bílum en þeim stærstu.  Sjá hér.


Varla ský á himni

Þessi MODIS mynd sem Ingibjörg Jónsdóttir sendi mér og er frá því í gær, 21. júlí sýnir vel að nánast heiðríkt var á landinu öllu.  Slíkt er að sumarlegi frekar fátítt, en kemur þó fyrir dag og dag, en nær aldrei tvo daga í röð.

Í sterkri sólinni varð hlýjast á Reykjum í Hrútafirði og á Brúsastöðum í Vatnsdal 21,7°C.  Það er næsta fátítt að Hrútafjörðurinn tróni á toppnum á miðju sumri, en engu að síður var það raunin í gær.  Var sjálfur á þessum slóðum í gær, nánar tiltekið á Dæli í Víðidal og get vitnað að í Húnaþingi var brækjuhiti.

Takið annars eftir jöklunum og skörpum skilum vetrarsnævarins og eldri jökulíss þar fyrir neðan (tvísmellið til að stækka).  Snælínan æðir upp eftir jöklunum. Frekari umfjöllum um þau mál voru hér fyrir nokkrum dögum.

MODIS_21.júlí 2010


Helgarveðrið 23. til 25. júlí

Helgarveðriðhvanneyjarviti_1009537.gif

 

Föstudagur 23. júlí:
Um norðan- og austanvert landið er gert ráð fyrir góðu sumarveðri, hægur suðvestan- og sunnanvindur og léttskýjað.  Hiti allt að 18 til 20 stig.  Sunnan- og vestanlands þykknar upp um leið og skil frá lægð hér suðvestur í hafi nálgast.  Strekkingsvindur af suðaustri, eða allt að 8-10 m/s og rigning frá miðjum degi, einkum sunnan og suðvestanlands.  Reiknað er með að skilin fari síðan yfir landið um kvöldið og nóttina, þannig að einnig þar verði sums staðar væta um tíma norðan- og austanlands.

Laugardagur 24. júlí:
Spáð er suðlægum vindi, víðast fremur hægum.  Á Suðurlandi, allt austur á Hornarfjörð má reikna með skúraleiðingum eða lítilsháttar rigningu.  Svipað veður suðvestanlands, en á norðanverðu Snæfellsnesi, við Breiðafjörð og á Vestfjörðum er útlit fyrir að þurrt verði að mestu og skýjað með köflum. Hiti þar um 14 til 17 stig yfir daginn.  Á Ströndum og Norðurlandi, austur um á sunnanverða Austfirði er gert ráð fyrir að það létti til á nýjan leik, ef til vill skýjað þó framan af morgni. Vænn hiti á þessum slóðum, eða allt að 17 til 20 stig.  Fer jafnvel enn hærra, nái sólin að skína glatt.  Hæg S-áttin ætti víðast hvar að ná að halda aftur af hafgolunni.

Sunnudagur 25. júlí:
Á sunnudag helst veður svipað, enn suðlægur vindur og það er helst að heldur meira verði úr skúraleiðingum eða vætu sunnan- og suðaustanlands.  Um norðan- og norðaustavert landið ætti samkvæmt þessu að verða bæði hlýtt og bjart eða um og yfir 20 stiga hiti þegar best lætur og líkast til víða léttskýjað.


Sumarið komið norður ?

HIRLAM-spákort, gildir 19.júlí kl. 21 2010Ánægjulegt var að sjá í morgun að á Bergstöðum við Sauðárkrók var komin SV-gola, létt hafði til og hitinn nálgaðist óðfluga 20 stigin.  Svipað í Húnaþingi og norður í Eyjafjörð.  Þar austanvið hafði SV-þeyrinn enn ekki kl. 09 náð að láta til sín taka.  

Þetta eru verulega góð tíðindi fyrir Norðlendinga, en umbreytingin yfir í góða tíð, er aðeins hikstandi, því fyrir norðan land leynist lægðarbóla, sem skýst í dag til suðausturs og beinir í kvöld aftur lofti úr norðri.  Það verður þó að mestu án úrkomu, en svalinn fylgir því engu að síður.  Meðfylgjandi spákort (HIRLAM) af Brunni Veðurstofunnar sýnir þetta vel kl. 21 í kvöld.

En seinni partinn á morgun og ekki síðar en á fimmtudag er von á "þykkum" og ekta suðvestanloftstraumi og þá hlýnar varanlega og birtir upp norðanlands og austan !


Litla Skarð í Borgarfirði

picture_157.png

Í samantekt gærdagsins um hæsta hitann trónaði eins og svo oft áður Þingvellir á toppnum með 24,1°C. Borgarfjarðarstöðvarnar, Húsafell, Hvanneyri og Stafholtsey fóru allar í tæpar 22 gráður.  Þar sem ég var staddur skammt frá orlofsbyggðinni í Munaðarnesi var hitinn svo að segja kæfandi um miðjan daginn í gær og ekki hafgola eins og neðar í héraðinu. Hefðbundinn gluggamælir á norðurhlið húss fór um tíma upp í 26°C, en hann sýnir eins og títt er um slíka mæla ívið of hátt gildi við þessi skilyrði. Geislun frá dökkum við hússins hefur þar mest að segja.

Mér var þá hugsað til Litla Skarðs hérna skammt norðurundan.  Þar er mælistöð, en í hana eru ekki sóttar upplýsingar nema tvisvar á sólarhring.  Litla Skarð er engin venjuleg veðurathugunarstöð.  Hún er hluti samhæfðrar umhverfisvöktunar sem staðið hefur yfir frá 1996. Vöktunin felur í sér að fylgst er með ýmsum eðlis-, efna- og líffræðilegum þáttum yfir ákveðið tímabil. Þetta er norrænt verkefni og ýmsar stofnanir koma að þessari vöktun auk Veðurstofu Íslands (sjá nánar hér). 

Eitt sinni gekk ég að þessum mælireit fyrir tilviljun. Hann er utan alfararleiðar, nokkru ofan við Vesturlandsvegi í landi Litla Skarðs í Stafholtstungum í um 115 metra hæð.  Mælingasvæðið er í kjarrivöxnu landi og lætur lítið yfir sér.

En ég sé í dag að hitinn í Litla Skarði hefur náð rúmum 23°C á milli kl. 16 og 17 í gær og þannig átt að verða í 2. eða 3. sæti þeirra stöðvar sem hæstan hitann mældu.



« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 7
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1790796

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband