28.12.2011
Tími glitskýjanna
Þorlákur Sigurbjörnsson sem býr í Langhúsum í Fljótum sendi mér þessa mynd sem hann tók við birtingu í gærmorgun, þrjðja jóladag.
Fljótamenn eru ekki óvanir glitskýjum en hann sagði með sendingunni; "Þá logaði bókstaflega austurhimininn af glitskýjum, þau voru fleiri en ég hef nokkru sinni séð."
Mesta von til þess að sjá glitský er frá því upp úr 5 til 10. desember og fram í janúar. Glitský myndast þegar óvenjukalt er í heiðhvolfinu (um eða undir -70 til -90 °C). Þau eru mynduð úr ískristöllum, eða úr samböndum ískristalla og saltpétursýru-hýdrötum.
Um þessar mundir eru meiri líkur en oft áður til að sjá glitský. Bæði hefur verið nú að undanförnu óvenju kalt í heiðhvolfingu og síðan hjálpar það til að dagar með hreinviðri eru algengir í tíðinni nú þegar fremur kalt er og lítið um lægri ský sem kunna að byrgja sýn. Síðustu daga hefur mestur kuldinn í heiðhvolfinu verið fyrir norðan og norðvestan landið. Einnig í dag, en síðan hlýnar nokkuð þarna uppi á okkar slóðum í bili a.m.k.
Heilmikinn fróðleik um glitský er að finna í fróðleikshorni Veðurstofunnar sem vísða er til hér.
Flokkur: Fallegar myndir | Breytt s.d. kl. 20:46 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 9
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 59
- Frá upphafi: 1788777
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 55
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
http://www.flickr.com/search/?s=rec&ss=2&eui=58528445@N04&w=all&q=glitsk%C3%BD&m=text
Pálmi Freyr Óskarsson, 28.12.2011 kl. 12:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.