Himinninn logaði í Hólminum

Stykkishólmur 15.júlí 2012 ESvÞað var tilkomumikið sólarlagið í Stykkishólmi í gærkvöldi.  Sólin settist laust fyrir kl. 23:30, en það var ekki fyrr en eftir sólsetur sem sjónarspilið hófs.  Þá tóku geislar sólar neðan sjóndeildarhrings að stafa geislum sínum á fremur há breiðu netjuskýja í um 5 km hæð og annarra háskýja þar fyrir ofan.  Myndirnar tók ég til vesturs og norðvestur út yfir Breiðafjörðinn um kl. 00:30 eða um klukkustund eftir sólsetur þegar sólin var kominn þetta 5-6° undir sjóndeildarhring.  Birtan úti við var undarleg bleikur og rauður liturinn endurkastaðist frá skýjunum.

Þetta er stund sem maður upplifir ekki að jafnaði nema einu sinni á hverju sumri og varla það. 

Stykkishólmur 15.júlí 2012(2) ESv


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mikið eru þetta flottar og tilkomumiklar myndir Einar.  Takk fyrir að miðla þeim með okkur hinum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.7.2012 kl. 12:05

2 identicon

Jú jú Einar minn  þetta uppæifir maður á hverju góðu sólarlagskvöldi  þegar maður býr við Breiðafjörðinn og finnst þetta alltaf jafnfallegt

Sigríður Diljá (IP-tala skráð) 16.7.2012 kl. 12:38

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er raunar algjörlega svo sannarlega fordild að fá að upplifa svona fegurð.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.7.2012 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband