Glæsileg mynd -hér í stærri upplausn

Ísland 12Ingibjörg Jónsdóttir er einkar fundvís á góðar tunglmyndir. (sjá síðu hennar, Hafís við Ísland).

Græn/rauða geislunarútgáfan er sérlega athyglisverð nú, bæði þegar þónokkur háfís er enn á sínum slóðum úti á Grænlandssundi og eins þegar snjór, jafnvel nýlegur snjór situr í fjöllum t.d. á N-verðum Vestfjörðum.

H ér er hins vegar ljósmyndin er betri upplausn.  Fjöldi veðurathugunarstöðva hefur gefið upp heiðríkju í dag og þokan sem var við Norðurland í morgun, hefur verið á hröðu undanhaldi.  Suðaustanlands hefur aftur á móti verið skýjað eins og sjá má og jafnvel úrkomuvottur. Yfir landinu er háþrýstingur og almennt  niðurstreymi lofts.  Einu bólstraskýin sem talandi er um að myndast hafi í sterku sólskininu yfir landinu má sjá á myndinni. Ógreinilega þó, en þau eru yfir Reykjanesfjallgarðinum.  Höfuðborgarbúar gátu lík séð þau með eigin augum.  Suðvestur af Hofsjökli virðast vera ský, en græn/rauða útgáfan sýnir svo ekki verður um villst að þar er á ferðinni snjór í "Hreppafjöllunum" 


mbl.is Ísland séð utan úr geimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk kærlega

Steinar (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 21:03

2 identicon

Þessi mynd er nú ekkert slor heldur: http://veimages.gsfc.nasa.gov/16716/image02022004_lrg.jpg

Hægt er að geta sér til um það hvað klukkan er þegar þessi mynd er tekin ef maður skoðar skuggana sem falla á fjöllin.

Hvaða tíma dags haldið þið að þessi mynd sé tekin?

Einar Örn Ólafsson (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 23:00

3 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Þessi umrædda vetrarmynd frá 2004 er fræg Einar Örn ! Hún hefur farið víða um lendur netsins.  Maður þekkir hana á sveipnum út af Vestfjörðum.

ESv 

Einar Sveinbjörnsson, 13.6.2007 kl. 08:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 20
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 95
  • Frá upphafi: 1786687

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 83
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband