26 stiga frost við Mývatn í morgun

Héðinshöfði í Mývatnssveit.pngKuldatíðin náði nýjum hæðum snemma í morgun þegar frostið fór í 26 stig á mælinum á Neslandatanga við Mývatn.  Í Möðrudal á Fjöllum var frostið 25 stig um svipað leyti.

Sýnist þetta vera mesta frostið þennan veturinn í byggð, en í Mývetningum sjálfum þykir frostið ekki mikið fyrr en það fer yfir 30 stigin.  Eins og svo oft áður er þetta bitra frost einvörðungu á vissum stöðum í innsveitum. Einnig var yfir 20 stiga frost fremst í Bárðardal (Svartárkot) og á Brú í Jökuldal.

Þess má geta að mesta frost sem mælst hefur hér á landi er  38 stig, frostaveturinn 1918, á Grímsstöðum og Möðrudal á Fjöllum.  

Mynd: Við Héðinshöfða að vetri til. (fengin af vefnum myvatn.is) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Frostið 1918 var reyndar -38 stig.

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.2.2009 kl. 13:09

2 identicon

Mesta frost sem ég hef upplifað var ekki hérna á Fróni heldur í "heita" landinu Svíþjóð, -33 C° + loftraki. BRRRRRRRRRRRRRRR.....

Jóhann Grétar Kröyer Gizurarson (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 18:51

3 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Auðvitað Sigurður Þór.  -38°C.  Veit ekki hvaðan þessari tölu, -44 hefur skotið í kollinn á mér :)  Leiðréttist strax.

ESv 

Einar Sveinbjörnsson, 9.2.2009 kl. 09:14

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Stundum fáum við svona augnabliks meinlokur þó við vitum í rauninni betur.

Sigurður Þór Guðjónsson, 11.2.2009 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband