Mikið rignt suðaustanlands

Síðasta sólarhringinn hefur mikið rignt suðaustanlands, þó ekkert meira en gengur og gerist við þessi skilyrði þegar milt og rakt loft er þvingað með S- og SA-átt yfir Vatnajökul.

Mesta sólarhringsúrkoman var á eftirtöldum stöðum:

  • 143,4 mm  Kvísker 
  • 127,4 mm  Snæbýli í Skaftártungu
  •   94,3 mm  Dalshöfði í Fljótshverfi

Stöðin Lónakvísl inn undir Langasjó kemur þarna einnig við sögu með 106 mm.

Í Reykjavík þótti mörgum vera ausandi rigning í allan gærdag.  Engu að síður mældist ekki nema tæplega 19 mm í höfuðborginni.

Í dag mun áfram rigna, en nú frekar fyrir miðju Suðurlandi og vestur á Reykjanes, en minna eða lítt þarna austurfrá. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heldurðu að sprænan sú arna heiti ekki Lónakvísl?

Þorkell Guðbrands (IP-tala skráð) 12.12.2009 kl. 18:47

2 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Ójú Þorkell !

Einar Sveinbjörnsson, 12.12.2009 kl. 23:33

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Lónahvísl er meira duló og seiðandi nafn!

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.12.2009 kl. 18:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 1786850

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband