Hlýtt á blettum, en ekki landshitamet enn !

SkaftafellÞegar þetta er skrifað og athuganir liggja fyrir kl. 07 hafa eftir eftirfarandi háar hitatölur komið fram:

  • Skaftafell 14,0°C  um kl. 03.
  • Reykir í Fnjóskadal 13,9°C  kl 06.

 

Á Vegagerðarstöðvunum sem sjá má slóðinni www.vegagerd.is  má finna enn hærri hitatölu

  • Steinar undir Eyjafjöllum  ca. 15°C  kl.04.
  • Lómagnúpur  ca. 13°C  kl.06.

Til viðbótar þessu hefur líka verið allhlýtt á Siglufirði og þar í grennd í morgun. 

Hlýja loftið sem er að finna uppi í um 1200-1500 metra hæð hefur sem sé náð niður í stutta stund á stöku stað, en víðast á landinu er hiti annars ekki nema 3 til 6°C.  Sérstaklega voru miklar sveiflur í Skaftafelli, því rétt áður en hitinn þar fór í 14° mældist hann ekki nema 1,9°C (skoðið hér sjálf).  Hitanum skolaði niður í einni NV-vindhviðu upp á þó ekki nema 11 m/s. 

Það vantar örlítið meiri upp á vindinn hlémegin fjalla til þess að komamestu hlýindunum niður til yfirborðs jarðar.   Það gæti svo sem enn átt eftir að gerast til hádegis.  Við fylgjumst áfram með !


Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Rétt fyrir hádegi var 10 - 11 stiga hiti á heimilismælinum og í bílnum hér á Dalvík, ég keyrði til Akureyrar um hádegið 45 km..og þar var 3 - 5 stiga hiti, mismunandi eftir stöðum... ég kom til Dalvíkuraftur um 13.30 þá var hitinn þar 9 - 10 stig.

Júlíus Garðar Júlíusson, 24.1.2007 kl. 19:06

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 79
  • Frá upphafi: 1786734

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband