Óvenjumiklar hitasveiflur

picture_291.pngVegfarandi sem er staddur undir Eyjafjöllum á austurleið er þar í +7°C og snarpri V-golu.  Austur í Mýrdal er ekki jafn milt, en hiti samt yfir frostmarki. Þegar komið er yfir brúna á Múlakvísl, snarbreytist ástand mála og á Mýrdalssandi mældust -5°C á sama tíma. 

Þetta er 12 gráðu munur á tveimur stöðum sem liggja álíka sunnarlega og tiltölulega stutt á milli í loftlínu.  Milda loftið úr vestri flýtur yfir Mýrdalssand og niðri við jörð heldur sig kalt og þungt loft sem komið er ofan af hálendinu niður meðfram Mýrdalsjökli.  Með öðrum orðum, Mýrdalsjökull virkar eins og þröskuldur í V-áttinni og eftir situr kuldapollur á stóru svæði á Sandinum og austur í Skaftártungu og á Síðu.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 1786820

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband