Það vorar vel í Mýrdalnum og undir Eyjafjöllum

Undir Eyjafjöllum að sumarlagi

Oft hefur maður heyrt tröllasögur af því að syðst á landinu í skjóli jökla í Mýrdalnum og undir Fjöllunum taki gróður að spretta nokkrum vikum fyrr en annars staðar á landinu.  Skömmu fyrir helgi var ég þarna sjálfur á ferð og sá með eigin augum að sögusagnirnar eiga svo sannarlega við rök styðjast.  Ekki nóg með að tún voru orðin algræn heldur sá ég við einn bæinn bændur vera farna að bardúsa við áburðardreifingu og á öðrum bænum sá ég ekki betur en að búið væri að hleypa út kúm (þetta voru ekki geldneyti, greinilega mjólkurkýr).  Þegar leið lá síðan um Rangárvelli blasti við önnur sjón, lítið var um græn grös og heiðgul sinan mest áberandi.

Þó þessar vorgóðu sveitir liggi vissulega syðstar hér á landi er skýringin þó fyrst og fremst skjól sem Eyjafjallajökull og Mýrdalsjökul veita fyrir napri N-áttinni sem svo oft næðir um að vorlagi. 

Síðastliðna nótt (aðfararnótt sunnudagsins)  þá frysti um nær allt land.  Mest á láglendi fór frostið niður í 6,8 stig á Staðarhóli í Aðaldal, og á Suðurlandi varð frostið 3,8 stig á Hjarðarlandi í Biskupstungum og svipað var það í Þykkvabænum.  Á Vatnsskarðshólum í Dyrhólahverfi frysti aftur á móti ekki í nótt.  Þar varð lágmarkshiti næturinnar +2,1°.  Það eru nefnilega næturfrost öðru fremur sem seinka komu vorgróðurs hér á landi. 

   


Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 629
  • Sl. viku: 3214
  • Frá upphafi: 1608518

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 2547
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband