Frá árinu 1991 hefur Danska Veðurstofan starfrækt sjálfvirka stöð uppi á miðjum Grænlandsjökli í um 3.200 metra hæð. Kallast hún SUMMIT, en á þeim stað hafa verið teknir borkjarnar til veðurfarsrannsókna. Sjálfur hefði maður talið að slík staðsetning fyrir stöð væri vonlaus yfir vetrartímann, bæði hefði maður talið að festa væri ónóg en það merkilega er að stöðin er mönnuð. Það fást sem segt einhverjir einstaklingar til að halda út yfir veturinn þarna uppi á miðjum ísnum !
En rekstur stöðvarinnar hefur gengið ágætlega og einnig rifjast upp fyrir mér að mælingar eru gerðar hérlendis upp á Brúarjökli, þar er hins vegar ekkert fólk að staðaldri.
Hvað um það, í kaldara lagi hefur verið í haust þarna uppi á Grænlandsjökli við Summit og kuldamet verið sett. Þann hafði frostið aldrei orðið meira í september en þ. 25. sl. og 31.október mældist frostið mest -55,2°C sem er lægsti hiti í október frá byrjun þessara mælinga.
Þannig háttar til að Grænlandshæðin er bæði fyrr á ferðinni en oft áður og meira áberandi nú. Loftið hefur verið stillt og loftið yfir jökulhvelinu kólnað í kröftugri útgeislun. Þetta ástand hefur mátt greina á veðurkortunum un nokkurt skeið. En til að svona mikið frost verði þarf kaldasti kjarninn í háloftunum að vera staðsettur nærri Grænlandi eða skammt vesturundan. Sú varð einnig raunin nú.
Þess má geta að -63,3°C er lægsti mældi hiti á Summit (febrúar 2001).
Flokkur: Utan úr heimi | 7.11.2007 (breytt 6.9.2009 kl. 20:08) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 1790232
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 40
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hlýnun hvað...?
Gunnar Th. Gunnarsson, 7.11.2007 kl. 14:41
Mun þessa kulda þá ekki gæta á Íslandi? Við erum jú mjög nálægt Grænlandi.
Annars þykir mér þú kaldur á tímum pólutískrar rétthugsunar að koma með svona færslu
Ljónsmakkinn (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 15:45
Útgildi eins og þessi Gunnar segja ekkert um veðurfarsbreytingar á lengri tímaskala. Mælingarnar eru líka tiltölulega nýjar af nálinni ef út í það er farið. Hins vegar er alltaf gaman af veðurmetum hvaða nafni sem þau nefnast, sérstaklega þau sem slegin eru hér á landi eða í grenndinni.
ESv
Einar Sveinbjörnsson, 7.11.2007 kl. 17:03
Tók mig smá tíma að lesa þetta, etv. farinn að ryðga í íslenskunni...
er Gunnar útgildi? Er hann þá útgildingur að austan? eða er útgildi eitthvað annað?
http://esv.blog.is/js/tiny_mce/plugins/emotions/images/Joyful.png
með kveðju frá Suður Grænlandi, þar sem í dag hreyfir ekki vind og fínt frost, smá skýjaslikja.
Baldvin Kristjánsson, 7.11.2007 kl. 18:42
Það eru einmitt tvær stöðvar á Suðurskautslandinu líka, ein nálægt suðurpólnum, og hún er mönnuð allt árið. Þar fá menn að fara í 3. mín. sturtu einu sinni í viku - eða jafnvel sjaldnar og svo er salat með matnum einusinni í mánuði :-) En samt fæst fólk til að vera þarna, í ár í senn.
http://www.antarcticconnection.com/antarctic/stations/southpole.shtml
Kveðja,
Elín BJörk.
Elín Björk Jónasdóttir (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 21:37
Heh... gott að ég er ekki út-geldingur
Annars hef ég ekki heyrt þetta orð fyrr en reikna með að þetta þýði mælingu sem sker sig úr
Gunnar Th. Gunnarsson, 8.11.2007 kl. 02:31
Er þetta þá ekki vel borgað að vera á suðurpólnum?
Sigurður Þór Guðjónsson, 8.11.2007 kl. 16:59