Sigurður Þór Guðjónsson bendir á það á sínum stað að í gærmorgun hafi sólarhringsúrkoma mælst 56,6 mm í Stykkishólmi. Aldrei fyrr í sögu úrkomumælinga þar hafi sólarhringsgildið verið hærra í desember, en áður rignt meira í öðrum mánuðum.
Þetta væru svo sem heldur ómerkileg tíðindi nema fyrir þær sakir að úrkomumælingar hafa farið fram í Stykkishólmi látlaust frá árinu 1856. Fyrra met sem er heilum 10mm lægra er síðan 10.des 1935.
Landfræðilega háttar til í Stykkishólmi ekki ósvipað og í Reykjavík. SA-átt sem helsta úrkomuáttin stendur af fjallgarði sem tekur til sín megnið af rakanum. Í Stykkishólmi eru það Ljósufjöllin, en Bláfjöll í Reykjavík. Úrkomumagn er því ævinlega minna en ýmsum öðrum stöðum í nágrenninu. Hafa ber í huga að í fyrrinótt var vindáttin sunnanstæð.
Þó að 56,6 mm í Stykkishólmi virki ekki mikið magn, t.a.m. í samanburði við Bláfeld á sunnanverðu Snæfellsnesi eða í Grundarfirði þar sem hléáhrifa fjallanna gætir lítt, sýna mælingar það greinilega að miðað við veðurfarið í Stykkishólmi hefur hér verið um nokkuð merkilegan atburð að ræða.
Flokkur: Veðuratburðir hér og nú | 19.12.2007 (breytt 26.8.2009 kl. 21:31) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 1790258
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar