Ég er dálítið hissa á því hvað lending Phoenix geimfarsins á Mars hefur fengið litla umfjöllun hér hjá okkur, en í fyrrinótt lenti farið nærri norðurskauti Mars og myndir tóku að berast.
Þær fyrstu og m.a. sú sem hér fylgir sýnir greinilegt mynstur í yfirborði sem minnir um margt á fyrirbæri sem okkur Íslendingum eru að góðu kunn, nefnilega melatígla eða frosttíglar eins og þeir eru líka oft kallaðir. Slík fyrirbæri eru vel útskýrð og eru tilkomin vegna frostverkunar vatns í jarðvegi. Melatíglar eru t.a.m. algengir á ógrónum sífrerasvæðum (eða þar sem jarðklaki fer mjög seint) og má sjá víða á hálendinu og í fjalllendi almennt séð.
Í ágripi að jarðfræði Íslands eftir Ara Trausta Guðmundsson segir á bls. 144: " Á melum renna steinar smám saman niður bungurnar sem rísa á þessum setsvæðum og setjast í dældir á milli þeirra. Að löngum tíma liðnum hefur mest allt grjót lyfst upp á yfirborð melanna og raðast í tígla eða fleirhyrninga."
Hin myndin sýnir einmitt það sem um ræðir og hefur greinilega samsvörum við myndina frá Mars. Hún er fengin af bloggvef Stefáns Bjarnasonar og er ofan af Esju.
Stjörnufræðivefurinn geymir gagnlegar upplýsingar um vatn á Mars, en fljótlega eftir uppgötvun reikistjörnunnar á 17. öld komu fram kenningar um ís á pólum Mars.
"Víða á yfirborðinu sjást ummerki fljótandi vatns á borð við uppþornuð stöðuvötn og árfarvegi. Kvíslamynstur og fínlegar hlykkjóttar rásir í flatbotna gígum benda sterklega til þess að vatn hafi einu sinni runnið um plánetuna.....Eins og aðstæður eru í dag á Mars getur vatn ekki runnið þar um í fljótandi formi. Hitinn er svo lágur og loftþrýstingurinn svo lítill að vatn getur aðeins verið á formi íss eða vatnsgufu. Þetta þýðir að í fyrndinni þegar fljótandi vatn var á Mars hlýtur lofthjúpurinn að hafa verið bæði þykkari og hlýrri en í dag.
En hvert fór allt vatnið og hvað er mikið til af því? Talið er líklegt að það sé e.t.v. frosið einhvers staðar undir yfirborðinu og í pólhettunum. Samanlagt magn þess er óþekkt en með rannsóknum á ýmsum svæðum hafa menn áætlað að þar sé nóg vatn til að þekja plánetuna með 500 metra djúpu vatni."
Ef berast fleiri góðar myndir sem sýna frosttígla eða aðra kunnuga frostverkun vatns, mun þær styðja mjög við eldri kenningar þess efnis að vatnið á Mars sé að mestu bundið sem ís í jarðlögum og þá einkum við póla reikistjörnunnar.
Tenglar:
Frétt BBC hér
Mars á Stjörnufræðivefnum
Flokkur: Utan úr heimi | 28.5.2008 (breytt 26.8.2009 kl. 14:22) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 1790124
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er mjög spennandi mál. Og ég deili undrun minni með þér yfir því hvað lítið er fjallað um þetta hér. Það varður spennandi að fylgjast með framvindunni.
Þórhildur Daðadóttir, 28.5.2008 kl. 10:37
Já þetta er sérstaklega spennandi verkefni og tek undir með þér að það er furðulegt að það skuli ekki fá meiri umfjöllun. Ég held reyndar að fréttir af tækni og vísindum fái því miður ekki mikla lesningu.
Steinn Hafliðason, 28.5.2008 kl. 12:01
Einn greinilegur mismunur á þessum mynstrum á Mars og jarðneskum melatíglum. Grjótið á Mars er dreift um svæðið og er síður ofan í millirásunum eða hvað á að kalla jaðra tíglanna. En þetta eru bara fyrstu myndir og nú eiga vísindamenn NASA og kollegar þeirra vítt og breitt eftir að flokka og skilgreina upplýsingar, sem berast munu næstu vikur og mánuði ef allt fer að óskum.
Dr. Feelgood (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 13:07
Nasa-menn hafa sennilega kíkt á þessa bloggsíðu eða skoðað jarðfræðibók Ara Trausta því þeir eru komnir með þetta atriði á vefinn sinn: http://earthobservatory.nasa.gov/Newsroom/NewImages/images.php3
Emil Hannes Valgeirsson, 28.5.2008 kl. 16:06
Íslenskir frost-tíglar eru oft þannig að grjótið rennur í leysingum niður í skurðina milli tíglana, þannig að þar myndast grjótgarðar. Á Mars er ekkert yfirborðsvatn og snjórinn á heimskautasvæðum er kolsýrusnjór. Hann bráðnar ekki, heldur breytist hann beint úr föstu efni í loftkennt (CO2), eða "sublimerar" (sublimate). Það er líklega þess vegna sem frost-tíglarnir gætu verið aðeins frábrugðnir á Mars, þannig að grjótið myndar ekki garða milli tíglana.
Ágúst H Bjarnason, 30.5.2008 kl. 09:17