Í frétt mbl.is er vitnað í heimasíðu Jóns G Guðjónssonar veðurathugunarmanns í Litlu-Ávík á Ströndum þar sem jörð var alhvít í morgun. Mistökin liggja í því að síða Jóns hefur slóðina litlihjalli, en bærinn er vitanlega Litla-Ávík. Hér er tengill á síðu Jóns.
Annars mældist snjódýptin 3 sm í Litlu-Ávík kl. 9 í morgun. Mest á landinu var hún hins vegar 21 sm í Bolungarvík. Þara hefur moksnjóað frá því í gærkvöldi eins og víðar á norðanverðum Vestfjörðum.
Alhvít jörð á Ströndum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 12:08 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 48
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já Einar þetta er nú svo sem ekki ókunnug staða. Fjölmörg ár má finna þar sem snjóað hefur á Snæfjallaströnd í maí og ekki síður í júní. Þetta ástand virðist samt meira áberandi nú með mildum vetrum og svölum vordögum. Ég skil nú samt ekkert í þeim sem krefjast útsprunginna rósa í maí. Það býður bara hættunni heim. reynslan er nú sú að þrátt fyrir alræmd "hvítasunnu" og jafnvel "jónsmessu" hret jafnast þetta út. Minni á vorið 2006 sem og vorið 2004 sem var jafnvel ennþá verra. Hitt er annað að nú hefur verið fremur svalt og þurrt í rúmar 2 vikur eftir góða daga í byrjun mánaðar þar sem sumir héldu vera komið sumar. Takk annars fyrir góða síðu og velkominn á Snæfjallströndina eða í Tálknafjörð í sumar.
IK
Ingólfur Kjartansson, 25.5.2007 kl. 22:58
Nei hvur þremillinn, 21 sm í lok maí! Nei núna hætti ég barasta að trúa á hnattræna hlýnun.
Ari (IP-tala skráð) 27.5.2007 kl. 04:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.