Með belti um sig miðja

Hafnarfjall 25. okt 2009Var á ferðinni í Borgarnesi í dag og þá mátti líta Hafnarfjall með snjóföl ofantil, en einkennilegt hvítt belti um miðjar hlíðar.  Engan snjó var hins vegar á sjá við fjallsræturnar.  Ég tík mynd af þessu á síma og hún er þar af leiðandi í heldur lökum gæðum.  Engu að síður má sjá röndina eftir endilangri hlíðinni.

Þetta er auðvelt að skýra og stundum má sjá nokkuð svipað í fjallhlíðum víða, sérstaklega að hausti eða vetrarbyrjun.  Úrkoma hefur fallið í hlíðum Hafnarfjalls.  Snjókoma efst í vægu frosti, en við sjávarmál hefur hitinn verið líkast til nærri +3 til +4°C og þar því rignt.  Þarna á milli snjóa í hita rétt ofan frostmarks.  Snjórinn klessist þarna í grjótinu. Ofar, þar sem snjórinn er þurr, fýkur hann út í buskann með vindi og nær ekki að setjast til nema í óverulegum mæli.  Í hvilft undir brúnum að norðanverðu má þó sjá að nokkur skafl hefur myndast sem bendir til þess að þar hefur verið betra skjól.  Fyrir vikið virðist eins og aðeins hafi snjóað á þessu þrönga hitabili þar sem ofanhríðin er orðin aðeins blaut niður í hann hita þar sem bráðnar yfir í slyddu eða rigningu.

Ætli þetta belti sé ekki um 50-80 metra "þykkt" eða svo, en hitafall með hæð er oft þetta 0,5 til 0,8°C á hverja 100 metra þegar úrkoma er og loftið vel blandað samfara strekkingsvindi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta fyrirbrigði sér maður stöku sinnum í hlíðum fjallanna hér austan megin í Skagafirði. Fróðlegt að fá skýringuna á þessu hér að ofan.

Þorkell Guðbrands (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 14
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 1786620

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband