Merkilega hár hiti á hálendinu

Sandbúður/Jón Skjöldur KarlssonTók eftir því í morgun að á korti Veðurstofunnar kl.09 var hæstur hitinn á Sandbúðum á Sprengisandi  í 820 metra hæð.  Hitinn þar var þá 14°C og hækkandi í sterku sólskininu.  Í gær fór hitinn þarna í tæpar 19 gráður og eins var vel hlýtt í fyrradag. 

Mér þykir nokkuð merkilegt að sjá hversu hlýtt er í sólskininu á hálendinu þetta snemma sumars.  Við skulum athuga að það er ekki nema 6. júní.  Vanalega er snjó enn að leysa í þessari hæð, klaki í jörðu er fram á sumarið og geislar sólar fer þá í leysinguna en ekki upphitun sandanna og þar með loftsins.  Sumarhlýinda er þannig ekki að vænta á hálendinu í venjulegu árferði fyrr en í fyrsta lagi í lok júní og oftast ekki fyrr en komið er fram í júlí.  

MODIS_050620101400Sjá á tunglmynd (MODIS) frá því í gær, 5. júní kl. 14 að snjó hefur að mestu tekið upp á hálendinu.  Það er helst að sjá fyrningar svona úr lofti á Nýjabæarafrétt við Eyjafjarðarbotn og eins í Bleiksmýrarárdrögum þar austur af. Þarna er háslétta í um 800-1000 metra hæð. Myndin tekur líka af allan vafa.  Bullandi bólstramyndun á Sprengisandi og Hofsafrétti norðan Hofsjökuls.  Bólstrarnir eru órækur vitnisburður um það að jörðin hlýnar og varmi streymir upp í stað þess að bræða ís og snjó.

Á Hveravöllum var einnig sérlega hlýtt í gær eða tæplega 16°C.  Ekki veit ég hvað það er í sögulegu samhengi, en hitinn hefur vissulega farið yfir 20 stigin í júní þar, en vissulega alveg í lok mánaðarins. Hins vegar er maímetið 15,7°C á Hveravöllum frá 27.maí 1977.  Það ártal vekur upp ákveðin  hugrenningatengl því afar snjólétt þótti á hálendinu veturinn 1976-1977 líkt og nýliðinn vetur.

Myndin af skálanum í Sandbúðum er fengin af síðu Jóns Skjaldar Karlssonar mótorhjólagarps og tekin á miðju sumri fyrir nokkrum árum.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Árnason

Gæti verið að gjóskan sé að stuðla að minna hitatapi frá jörðu eða á einhvern hátt að halda í varma frá sólu ?

Vilhjálmur Árnason, 6.6.2010 kl. 13:29

2 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Ég fæ ekki séð að gjóska hafi áhrif á miðhálendinu að þessu leytinu.  Snýst um endurkast sólgeislunarinnar og þann varma sem nýtist í upphitun.  Á Sprengisandi er yfirborðið dökkt fyrir, því sem næst svart. Öðru máli skiptir þar sem gróður og hann kaffærður af gosösku. Síðan á sjálfum Eyjafjallajökli þar sem öskuskaflarnir drekka í sig varma sólarinnar í stað þess að hreinn jökulinn virkar líkt og spegill !

ESv

Einar Sveinbjörnsson, 6.6.2010 kl. 16:36

3 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Önnur spurning; geta þessi hlýindi á hálendinu haft áhrif á veðurfar og/eða hitastig á láglendi?

Sveinn Atli Gunnarsson, 6.6.2010 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Veðurfræðingur og veðurdellukall. Á þessari síðu verður aðeins fjallað um veður frá ýmsum sjónarhornum.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 92
  • Frá upphafi: 1786727

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 84
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband